Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Heilbrigðisráðherra hefur veitt Hafnarfjarðarbæ rekstrarheimild fyrir tólf nýjum dagdvalarrýmum fyrir fólk með heilabilun. Hafnarfjarðarbær mun útvega húsnæði fyrir reksturinn og ábyrgjast að þjónusta við notendur verði veitt á faglegum grunni í samræmi við þarfir fólks með alzheimer og aðra minnissjúkdóma.
Heilbrigðisráðherra hefur veitt Hafnarfjarðarbæ rekstrarheimild fyrir tólf nýjum dagdvalarrýmum fyrir fólk með heilabilun. Hafnarfjarðarbær mun útvega húsnæði fyrir reksturinn og ábyrgjast að þjónusta við notendur verði veitt á faglegum grunni í samræmi við þarfir fólks með alzheimer og aðra minnissjúkdóma. Leitað verður eftir samvinnu við Alzheimersamtökin sem faglegum bakhjarli þjónustunnar.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segist afar ánægð með að hafa getað orðið við ósk bæjarfélagsins um að auka þessa mikilvægu þjónustu, því þörfin sé brýn: „Bætt heilbrigðisþjónusta við aldraða samhliða stórsókn í fjölgun hjúkrunar- og dagdvalarrýma er áherslumál sem ég hef sett í sérstakan forgang. Vinna við stefnumótun í málefnum fólks með heilabilun er komin vel á veg og það er alveg ljóst að fjölgun sérhæfðra dagdvalarrýma fyrir fólk með alzheimer og aðra minnissjúkdóma felur í sér mikla bót fyrir þennan sjúklingahóp og aðstandendur þeirra“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
„Við höfum lengi talað fyrir aukinni þjónustu og fögnum því mjög ákvörðun ráðuneytisins. Í Drafnarhúsi eru í dag 22 einstaklingar í sérhæfðri þjálfun og tómstund sem er þessum hópi og aðstandendum þeirra afar mikilvæg. Nú er hægt að þjónusta 12 einstaklinga til viðbótar og vonandi enn fleiri þegar fram líða stundir. Mikill skortur er á dagdvalarrýmum fyrir fólk með heilabilun og brýn þörf á aukinni þjónustu sem eykur lífsgæði einstaklinganna“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Í Hafnarfirði hefur verið rekin sértæk dagdvöl fyrir fólk með heilabilun frá árinu 2006 í Drafnarhúsi. Hafnarfjarðarbær hefur lagt rekstrinum til húsnæði en reksturinn hefur verið á hendi Alzheimersamtakanna. Í Drafnarhúsi er aðstaða fyrir 22 einstaklinga. Með heimildinni sem ráðherra veitti Hafnarfjarðarbæ í dag verða sérhæfð dagdvalarrými fyrir heilabilaða samtals 34 í bæjarfélaginu.
Drög að stefnu í málefnum einstaklinga með heilabilun voru birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda 24. júní síðastliðinn og rennur umsagnarfrestur út 1. september næstkomandi.
· Drög að stefnu í málefnum einstaklinga með heilabilun í samráðsgáttinni
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…