Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hafnarfjarðarbær óskaði nýlega eftir áhugasömum þróunaraðilum á lóðum í fyrsta áfanga Hamraness. Alls bárust 12 umsóknir um þær fjórar lóðir sem í boði eru. Umsækjendur óska eftir 1-3 lóðum í umsóknum sínum.
Mikill áhugi á fjölbýlishúsalóðum í Hamranesi
Hafnarfjarðarbær óskaði nýlega eftir áhugasömum þróunaraðilum á lóðum í fyrsta áfanga Hamraness, 25 hektara svæðis sunnan við Ásvallabraut, Velli 6 og Skarðshlíð í Hafnarfirði. Alls bárust 12 umsóknir um þær fjórar lóðir sem í boði eru og því líklegt að mikil eftirspurn verði eftir lóðir á þessu nýja svæði þegar lóðir í næstu áföngum uppbyggingar verða auglýstar lausar til umsóknar. Umsækjendur óska eftir 1-3 lóðum í umsóknum sínum.
Skipulagsvinna á Hamranesi, nýju landsvæði í Hafnarfirði undir íbúðarhús, er farin af stað. Uppbygging á Hamranessvæði mun skiptast í þrjá áfanga og telja í heild um 540 íbúðir. Ákveðið hefur verið að úthluta fjórum lóðum af ellefu í fyrsta áfanga uppbyggingar á svæðinu til þróunaraðila (reitir 1-4 á mynd) og skapa þannig grundvöll fyrir fjölbreyttar og nýjar hugmyndir að búsetuformi, uppbyggingu og eðli. Fjórum lóðum í fyrsta áfanga verður, sem fyrr segir, úthlutað til þróunaraðila. Þrjár lóðir, sem hugsaðar eru sem hefðbundnar fjölbýlishúsalóðir, eru í deiliskipulagsvinnu og er þar gert ráð fyrir a.m.k. 170 íbúðum (reitir , 10 og 11). Þær þrjár lóðir sem eftir standa í fyrsta áfanga eru ætlaðar íbúðafélaginu Bjargi og er deiliskipulagsvinna þar einnig komin af stað (reitir 7, 8 og 9). Þar er gert ráð fyrir uppbyggingu 150 íbúða. Á svæði sem ætlað er þróunaraðilum er í heild gert ráð fyrir 217 íbúðum, byggðir fermetrar verða 27.088 á alls 14.741 m² landsvæði.
,,Þessi mikli áhugi á lóðum í Hamranesi er mjög ánægjulegur,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri, ,,…og áttum við reyndar von á góðum viðbrögðum því eftirspurnin hefur verið mikil eftir lóðum undir fjölbýlishús í Hafnarfirði. Hamraneshverfi mun liggja við hlið Skarðshlíðarhverfis og saman munu þessi tvö hverfi mynda fallegt vistvænt úthverfi sem býr svo vel að hafa uppland Hafnarfjarðar í bakgarðinum. Lóðasala í Skarðshlíð hefur gengið nokkuð vel og hverfið farið að taka á sig mynd. Frumbyggjar fluttu í hverfið í sumar, rekstur leik- og grunnskóla í Skarðshlíð er kominn á fullt og uppbygging á fjölbýlishúsum og sérbýlum í fullum gangi þessa dagana“ segir Rósa. Gert er ráð fyrir að niðurstaða umsókna um þróunarlóðir liggi fyrir í lok nóvember. Þá verði búið að meta gæði og umfang allra umsókna og taka afstöðu til þess hvort landsvæði undir þróunarbyggð verði stækkað.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…