Tónajól með 2 dívum og 200 nemendum

Fréttir

Annað árið í röð mun Tónlistarskóli Hafnarfjarðar blása til stórtónleika í samstarfi við vel þekkta hafnfirska tónlistarmenn.  Í ár eru það söngkonurnar Guðrún Árný og Margrét Eir sem báðar eru búsettar í Hafnarfirði. Tveir tónleikarnir undir yfirskriftinni Tónajól verða haldnir 8. desember í Íþróttahúsinu við Strandgötu. 

Annað árið í röð mun
Tónlistarskóli Hafnarfjarðar blása til stórtónleika í samstarfi við vel þekkta
hafnfirska tónlistarmenn. Í fyrra voru það bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónsson
sem stigu inn til samstarfs en í ár eru það söngkonurnar Guðrún Árný og Margrét
Eir sem báðar eru búsettar í Hafnarfirði. Tveir tónleikarnir undir
yfirskriftinni Tónajól verða haldnir 8. desember í Íþróttahúsinu við
Strandgötu. Stefnt er að því að tónleikarnir verði árviss viðburður í hafnfirsku
menningarlífi.

Miðasala á Tix.is eða HÉR

TonajolDagskra

Á dagskrá Tónajóla eru ýmis jólalög, sum í nýjum útsetningum kennara við
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Í skólanum eru tæplega 600 nemendur og eru margir
þeirra í hinum fjölmörgu og fjölbreyttu hljómsveitum sem starfa við skólann. Má
þar nefna sinfóníuhljómsveit, lúðrasveit, hrynsveit, gítarsveit,
klarinettusveit og flautusveit. Einnig koma fram nemendur úr söngdeild og
píanódeild og eldri hópur úr forskóla. Á annað hundrað nemenda koma fram að
þessu sinni.  Þannig flytja til að mynda
yngri strengjaleikarar Litla trommuleikarann, nemendur í forskóladeild,
gítardeild og strengjadeild lagið Klukknahljóð og Sjö litlar mýs og hrynsveit
lagið Jólasnjór. Margrét Eir mun flytja lagið Óskasteinn og Guðrún Árný Skammdegissól.
Saman syngja þær í dúett lagið Dansaðu vindur eftir Nanne & Peter Grönvall
við texta Kristjáns Hreinssonar í útsetningu Þrastar Þorbjörnssonar fyrir
blandaða hljómsveit.  Punkturinn yfir
Tónajólin er svo settur með lokalaginu Nóttin var sú ágæt ein eftir Sigvalda
Kaldalóns við sálm Einars Sigurðssonar í útsetningu Stefáns Ómars Jakobssonar
fyrir sinfóníuhljómsveit og söng. Lagið verður flutt af öllum þátttakendum. 

Viðburðinn Tónajól á Facebook er að finna HÉR 

Ábendingagátt