Tónlistarnámskeið fyrir 6 – 18 mánaða

Fréttir

Tónlistarskóli Hafnarfjarðar býður upp á 8 tíma tónlistarnámskeið fyrir börn á aldrinum 6-18 mánaða. Á námskeiðinu verða kennd skemmtileg lög, þulur og hreyfingar fyrir börn sem örva skynþroska þeirra. Notast er við hljóðfæri, slæður, borða og margt, margt fleira.

Kennari er María Gunnarsdóttir tónmenntakennari og fer kennslan fram í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar að Strandgötu 51. Kennt er á laugardögum frá kl.10 -10:40. Námskeiðið, sem er alls 8 skipti,  hefst laugardaginn 5. mars kl. 10. 

Innritun fer fram í gegnum Mínar síður á vef bæjarins: Umsóknir | Námsvist í tónlistarskóla og velja þar í valinu: Nám –  Ungbarnanámskeið. 

Frekari upplýsingar
veitir stefanj@tonhaf.is

Ábendingagátt