Tryggðu þér og þínum fjölskyldugarð í sumar

Fréttir

Fjölskyldugarðar Hafnarfjarðar eru opnir öllum bæjarbúum og er um að ræða frábært tækifæri fyrir fjölskyldur og einstaklinga í Hafnarfirði til að rækta sitt eigið grænmeti og hugsa um í sumar. Fjölskyldugarðarnir verða opnir á Víðistöðum og á Öldugötu. 

Fjölskyldugarðar eru opnir öllum bæjarbúum

Frábært tækifæri til ræktunar fyrir alla áhugasama – einstaklinga og fjölskyldur

Fjölskyldugarðar Hafnarfjarðar eru opnir öllum bæjarbúum og er um að ræða frábært tækifæri fyrir fjölskyldur og einstaklinga í Hafnarfirði til að rækta sitt eigið grænmeti og hugsa um í sumar. Fjölskyldugarðarnir verða opnir á Víðistöðum og á Öldugötu. Kostnaður fyrir einn garð er kr. 1.579.- og fyrir tvo garða kr. 2.632.- Líkt og hin síðari ár er grænmeti eða annað efni til ræktunar ekki innifalið en aðgengi að vatni og minniháttar verkfærum áfram til staðar. Garðarnir afhendast plægðir og hefst úthlutun undir lok maí ár hvert.

Ég vil sækja um garð – skráning fer fram hér 

Ræktum okkar eigið grænmeti í sumar!
Ræktum okkur sjálf á sama tíma og tengslin við fólkið okkar!

Ábendingagátt