Tuttugu hljóta menningarstyrk
Menningarstyrkir voru veittir við hátíðlega athöfn í Hafnarborg í dag. Tuttugu verkefni í heild hlutu styrk, verkefni sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn frekar listalíf bæjarins.
Menningarstyrkir voru veittir við hátíðlega athöfn í Hafnarborg í dag. Tuttugu verkefni í heild hlutu styrk að þetta sinni; einstaklingar, menningarhópar eða samtök sem eiga öll það sammerkt að tengjast Hafnarfirði með einum eða öðrum hætti. Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar eru afhentir einu sinni á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn frekar listalíf bæjarins.
Úthlutun styrkja Hafnarfjarðarbæjar byggir á mati á umsóknum. Menningarviðburðir, listamenn, félagasamtök eða stofnanir sem sækja um styrk verða að tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti. Hér telur t.a.m. föst búseta, að viðburður/verkefni fari fram í Hafnarfirði og/eða að verkefni feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar. Heildarupphæð styrkja eru 4.785.000.-
Hafnarfjarðarbær óskar styrkþegum öllum innilega til hamingju!
Styrki að þessu sinni hlutu eftirfarandi:
| Jórunn Jörundsdóttir | Bjartir dagar / opin vinnustofa | 60.000 kr. |
| Ólafur B Ólafsson | Söngur í bæ | 60.000 kr. |
| Ragnhildur Steinbach | Opin vinnustofa GallerýÝ | 60.000 kr. |
| Karlakór eldri Þrasta | Lokaverkefni Karlakórs Eldri Þrasta 2015- 2016 | 75.000 kr. |
| Soffía Sæmundsdóttir | Pressudagar 3.-5. júní 2016 | 80.000 kr. |
| Jóhanna Ósk Valsdóttir | Tónleikahald Barbörukórsins í Hafnarfirði | 100.000 kr. |
| Leikhópurinn Lotta | Litaland | 100.000 kr. |
| Steinunn Guðnadóttir | Hátíð Hamarkotslækjar | 150.000 kr. |
| Ármann Helgason | Mozart við kertaljós | 150.000 kr. |
| Halldór Árni Sveinsson | Þau byggðu bæinn | 150.000 kr. |
| Brynhildur Auðbjargardóttir | Annarleikur | 200.000 kr. |
| Stefán Ómar Jakobsson | Liðin tíð – hernámsball í Gúttó | 200.000 kr. |
| Steingrímur E Kristmundsson | Kvenhetjan | 300.000 kr. |
| Bryndís Björgvinsdóttir | Kvintett á vordögum | 300.000 kr. |
| Halldór Árni Sveinsson | Rúna | 350.000 kr. |
| Jón Gunnar Þórðarson | LORCA/YERMA | 400.000 kr. |
| Sveinssafn ehf | Sýningarnar Knútur bróðir og Steinarnir tala | 500.000 kr. |
| Kristinn Skagfjörð Sæmundsson | Heima 2016 | 500.000 kr. |
| Íshús Hafnarfjarðar ehf. | Sjómannadagshelgin við Flensborgarhöfn | 500.000 kr. |
| Finnbogi Óskarsson | Lúðrasveit Hafnarfjarðar | 550.000 kr. |