Styrkir sem auðga og dýpka listalíf Hafnarfjarðarbæjar
Menningarstyrkir voru veittir við hátíðlega athöfn í Hafnarborg í dag. Tuttugu og tvö verkefni í heild hlutu styrk að þetta sinni; einstaklingar, menningarhópar eða samtök sem eiga öll það sammerkt að tengjast Hafnarfirði með einum eða öðrum hætti. Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar eru afhentir einu sinni á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn frekar listalíf bæjarins.
Menningarstyrkir voru veittir við hátíðlega athöfn í Hafnarborg í dag. Tuttugu og tvö verkefni hlutu styrk að þessu sinni; einstaklingar, menningarhópar eða samtök sem eiga öll það sammerkt að tengjast Hafnarfirði með einum eða öðrum hætti.
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar eru afhentir einu sinni á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn frekar listalíf bæjarins. Úthlutun styrkja Hafnarfjarðarbæjar byggir á mati á umsóknum. Menningarviðburðir, listamenn, félagasamtök eða stofnanir sem sækja um styrk verða að tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti. Hér telur t.a.m. föst búseta, að viðburður/verkefni fari fram í Hafnarfirði og/eða að verkefni feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar. Heildarupphæð styrkja eru 5.500.000.-
Styrki að þessu sinni hlutu eftirfarandi:
| Ábyrgðarmaður umsóknar | Nafn verkefnis | Upphæð styrks |
| Christian Schultze | Maíhátíð | 45.000 kr. |
| Jórunn Jörundsdóttir | Opin vinnustofa – bjartir dagar | 60.000 kr. |
| Leikfélag Hafnarfjarðar | Hið vikulega | 100.000 kr. |
| Vigdís Klara Aradóttir | Íslenski saxófónkvartettinn | 100.000 kr. |
| Sara Gunnarsdóttir | Sýning í Hafnarborg – undirbúningur | 110.000 kr. |
| Ármann Helgason | Mozart við kertaljós | 150.000 kr. |
| Birgir Sigurðsson | 002 ljóslistagallerí | 150.000 kr. |
| Halldór Árni Sveinsson | Þau byggðu bæinn | 150.000 kr. |
| Alma Björk Ástþórsdóttir | Skrímslin í Hraunlandi | 160.000 kr. |
| Stefán Ómar Jakobsson | Skemmtitónleikar | 200.000 kr. |
| Bryndís Björgvinsdóttir | Sjónarhorn álfa | 200.000 kr. |
| Þórarinn Sigurbergsson | Hið íslenska gítartríó | 200.000 kr. |
| Marteinn Sindri Jónsson | Sóley og Marteinn Sindri í Bæjarbíó | 200.000 kr. |
| Jón Rafnsson | Ella Fitzgerald | 225.000 kr. |
| Leikfélag Hafnarfjarðar | Haustverkefni | 300.000 kr. |
| Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir | Bræðralag | 400.000 kr. |
| Páll Eyjólfsson | Þið munið hann Jónas | 400.000 kr. |
| Lana Íris Dungal Guðmundsdóttir | Rómeó og Júlía – söngleikur | 400.000 kr. |
| Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir | Sönghátíð í Hafnarborg | 450.000 kr. |
| Finnbogi Óskarsson | Lúðrasveit Hafnarfjarðar – tónleikar | 500.000 kr. |
| Henný María Frímannsdóttir | Heima | 500.000 kr. |
| Sveinssafn ehf | Móðri jörð og steinar jarðar, sýning | 500.000 kr. |
Hafnarfjarðarbær óskar styrkþegum öllum innilega til hamingju!