Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Tvær sýningar opna í Hafnarborg á fimmtudag. Sýning Unu Bjargar Magnúsdóttur Fylling og Roði sýning Eggerts Péturssonar. Aðgangur ókeypis og öll velkomin.
Hafnarborg býður ykkur ykkur hjartanlega velkomin á opnun einkasýninga myndlistarmannanna Unu Bjargar Magnúsdóttur og Eggerts Péturssonar fimmtudaginn 20. október kl. 18. Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, opnar sýningarnar.
Una Björg Magnúsdóttir byggir sýninguna Fyllingu utan um reisulegt hús frá 1921, sem áður hýsti heimili og apótek. Aðalsalur safnsins ber þess merki þar sem bogadregin framhlið eldra hússins er áberandi kennileiti salarins.
Eitt af aðalverkum sýningarinnar leikur sama leik – lágreist skilrúm teygir sig um rýmið, mótar sig eftir salnum en stikar þó nýtt rými innan þess – tómarými, nýtt svið, mögulegan leikvang.
Önnur verk eru unnin sérstaklega fyrir sýninguna, skúlptúrar, myndverk og pappírsverk, sem búa til fínlega frásögn sem reiðir sig á eiginleika rýmisins, efni þess og birtu, möguleika og takmarkanir. Þá tvinna þau saman tímalínur byggingarinnar, sögulegar og skáldaðar, og velta upp tengslum fyrirmynda og eftirmynda. Sýningarstjóri er Þórdís Jóhannesdóttir.
Sýning Eggerts Péturssonar nefnist Roði. Eggert hefur um árabil vakið athygli fyrir einstakan og ástríðufullan áhuga á íslenskri náttúru og þá sérstaklega flóru landsins. Í Sverrissal Hafnarborgar sýnir hann ný verk, þar á meðal málverk unnin sérstaklega fyrir sýninguna, þar sem hann heldur áfram rannsókn sinni á íslenskri náttúru en beinir sjónum sínum nú upp á við – að fjallagróðri og opnum himni. Smæstu jurtir verða að stórbrotnu landslagi þar sem gróður og yfirborð jarðar breytast í fínstillta myndbyggingu sem endurspeglar tíma, birtu og breytileika.
Einnig er sýnd sería nýrra grafíkverka, unnin í tengslum við væntanlega þýðingu á Paradís úr Gleðileiknum guðdómlega eftir Dante, þar sem andlegur og táknrænn heimur kallast á við jarðbundna sýn listamannsins. Sýningarstjóri er Aldís Arnardóttir.
Aðgangur ókeypis – sjáumst í Hafnarborg.
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…
Fjórða helgin okkar í Jólaþorpinu verður yndisleg. Veðrið mun leika við gesti en fyrst og fremst munu allar þær gersemar…
Börn fá frístundastyrk frá þriggja ára aldri. 10,6 milljarðar verða settir í fjárfestingar. Einnig verður sett fjármagn í uppbyggingu nýs…
Hjörtu okkar Hafnarfjarðar skarta fjólubláum lit í dag á alþjóðadegi fatlaðs fólks. Dagurinn er 3. desember ár hvert til að…
Menntastefna Hafnarfjarðarbæjar var kynnt á starfsdegi astarfsfólks frístundar-, grunnskóla- og leikskóla Hafnarfjarðarbæjar þann 14. nóvember. Þátttakendur gátu valið um ólíka…
Ný stefna um móttöku skemmtiferðaskipa í Hafnarfirði hefur verið samþykkt af bæjarráði. Stefnan gildir til 2035.
Um 30 útskrifuðust úr Leiðtogaskóla Hafnarfjarðarbæjar á dögunum. Nú hafa 90 stjórnendur bæjarins útskrifast. Kennslan eflir bæjarbraginn.
Mæðgurnar Lára Alda Alexandersdóttir og Silja Þórðardóttir lærðu saman að verða gusumeistarar. Þær nota kraftana í Herjólfsgufunni við Langeyrarmalir.
„Ég finn að Hafnfirðingar eru stoltir af Jólabænum og Jólaþorpinu á Thorsplani,“ segir Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri Jólaþorpsins sem orðið er…