Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Vegagerðin í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ og veitufyrirtæki bauð nýlega út tvöföldun Reykjanesbrautar frá Kaldárselsvegi og vestur fyrir Krýsuvíkurgatnamót og tengd verk sem snúa að breytingum á lögnum veitufyrirtækja. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist nú í vor og ljúki seint haustið 2020.
Um er að ræða tvöföldun á 3,2 km kafla frá Kaldárselsvegi og vestur fyrir Krýsuvíkurgatnamót þar sem ný akbraut sunnan núverandi vegar verður byggð. Brautin verður aðskilin með 3 m breiðri miðeyju milli akbrauta með vegriðum báðum megin. Akbrautin verður grafin niður um allt að 4 m á tveimur köflum frá núverandi göngubrú við Ásland og að Strandgötu og gegnum Hvaleyrarholtið frá Þorlákstúni og vestur fyrir nýju undirgöngin við Suðurbraut. Hluti framkvæmda er að breikka brúna yfir Strandgötu.
Samhliða breikkun Reykjanesbrautar verður ráðist í umfangsmiklar aðgerðir til að minnka umferðarhávaða í nágrenni brautarinnar og uppfylla reglugerðir um hljóðvist. Ný hljóðmön verður gerð milli Reykjanesbrautar og Ásbrautar á móts við Erluás og verður göngustígurinn frá enda núverandi göngubrú endurgerður. Hljóðmönin við Ásbraut á móts við Álftaás verður hækkuð. Núverandi hljóðmanir við Hvamma verða endurgerðar og næst brautinni verða notuð jarðvegshólf til að ná fram betri hljóðvist. Við Suðurhvamm eru einnig reistir hljóðveggir ofan á mön sem ná inn á Strandgötu og hljóðveggur settur á norðurkant Strandgötubrúar. Þá verður girðing úr timbri meðfram Þúfutúni skipt út fyrir hljóðvegg. Á Þorlákstúni verða gerðar hljóðvarnir. Austast verða háar manir með jarðvegshólfum en á vestari hlutanum verður gerð hefðbundin jarðvegsmön. Loks verða staðbundnar varnir gerðar við tengistöð HS veitna á móts við Suðurholt.
Samgöngur milli hverfa fyrir gangandi og hjólandi umferð verða bættar og gerðar öruggari með nýjum göngubrúm yfir Reykjanesbraut. Ný brú verður milli Hvamma og Áslands á móts við Álftaás. Núverandi undirgöng við Þorlákstún verða fjarlægð og brú kemur í staðinn. Stígahönnun miðar að bættu aðgengi fyrir alla. Áður en vega- og brúargerð hefst munu veitufyrirtæki hafa að mestu lokið við að færa lagnir. Um er að ræða háspennustrengi, fjarskiptalagnir, vatns- og hitaveitulagnir.
Opnuð hefur verið upplýsingasíða vegna framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar – þar má finna öllu helst gögn varðandi framkvæmdirnar og verður meira efni bætt við síðuna þegar fram líða stundir.
https://www.youtube.com/watch?v=So63XPtaNgw
Hafnfirðingar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta á opinn kynningarfund í Hafnarborg miðvikudaginn 13. mars 2019 kl. 17:30. Á þeim fundi verða framkvæmdirnar kynntar nánar ásamt áætlunum um hjáleiðir fyrir bæði akandi og gangandi umferð.
Nánari upplýsingar um viðburð er að finna HÉR eða á Facebooksíðu Hafnarfjarðarbæjar
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…