Umsóknarfrestur örstyrkja á Björtum dögum framlengdur

Fréttir

Opið er fyrir umsóknir um örstyrki til þess að halda viðburði og uppákomur um allan bæ í sumar til og með 20. júní nk.

Opið er fyrir umsóknir um örstyrki til þess að halda viðburði og uppákomur um allan bæ í sumar. Mikilvægt er að verkefnin skírskoti til breiðs hóps fólks og margir fái að njóta. Sjá eldri frétt um örstyrki.

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 20. júní.

Skriflegar umsóknir um fjárframlag til að skipuleggja viðburði og uppákomur í sumar skal senda verkefnastjóra Bjartra daga sem viðhengi á menning@hafnarfjordur.is fyrir 20. júní. Best er að sameina umsókn í eitt PDF-skjal með öllum gögnum. Umsóknir verða lagðar fyrir menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar fjármagni í samræmi við reglur menningar- og ferðamálanefndar um styrki til menningarstarfsemi. Nefndin mun úthluta örstyrkjum fyrir 1. júlí til verkefna sem fara fram í júlí og ágúst.

Í umsókn þarf að koma fram:

  • Nafn umsækjenda, kennitala, nafn og símanúmer
  • Samstarfsaðilar
  • Markmið, lýsing og tilefni umsóknar
  • Styrkupphæð sem sótt er um
  • Tíma- og verkáætlun
  • Önnur fjármögnun
  • Kostnaðaráætlun

Viltu skrá viðburð til þátttöku?

Hægt er að senda inn upplýsingar um viðburði í Hafnarfirði til birtingar í viðburðir framundan á hafnarfjordur.is

Ábendingagátt