Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Sex lóðir í Hamranesi í Hafnarfirði ætlaðar lögaðilum eru lausar til úthlutunar. Umsóknir skulu berast fyrir kl. 12 mánudaginn 4. maí 2020. Sótt er um rafrænt á Mínum síðum.
Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar 8. apríl 2020 var samþykkt að auglýsa lausar til úthlutunar sex lóðir undir þriggja til fimm hæða fjölbýlishús með 148 íbúðum í Hamranesi, nýju íbúðarsvæði sunnan við Ásvallabraut sem tengir svæðið við helstu stofnleiðir og er jafnframt skammt frá stoppistöð almenningsvagna. Engin byggð er á svæðinu í dag en þar mun rísa þétt byggð með hagkvæmu húsnæði sem lagar sig að landslagi staðarins.
Lóðirnar eru lausar til úthlutunar fyrir lögaðila og hægt er að skoða og sækja um rafrænt á „Mínar síður“ á vef Hafnarfjarðarbæjar. Ef tvær eða fleiri umsóknir um sömu lóð berast verður dregið á milli. Umsóknir skulu berast fyrir kl. 12:00 mánudaginn 4. maí 2020. Gert er ráð fyrir að umsóknir verði teknar fyrir á fundi bæjarráðs 7. maí 2020.
Um er að ræða eftirtaldar fjölbýlishúsalóðir á reit 6, 10 og 11 í 1. áfanga í Hamranesi:
Öll aðstaða verður til fyrirmyndar í hverfinu sem liggur á einu fallegasta og fjölskylduvænasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins sunnan við Velli og Skarðshlíðarhverfi. Lóðirnar eru í skólahverfi Skarðshlíðarskóla sem er um 400 m norðan við skipulagssvæðið sem tengist því með göngustígum og undirgöngum undir Ásvallabraut en þar er rekinn leik- og grunnskóli sem hefur þegar tekið til starfa og íþróttahús og útibú tónlistarskóla verða afhent í haust. Gert er ráð fyrir nýjum leikskóla á nálægum reit.
Lóðirnar eru til úthlutunar fyrir lögaðila
Mat á umsóknum lögaðila – við mat á umsóknum er tekið tillit til neðangreindra þátta:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar úthlutaði nýverið lóðum á fjórum reitum í fyrsta áfanga í Hamranesi eftir að hafa auglýst eftir áhugasömum þróunaraðilum.
Um er að ræða reit 6, 10 og 11 í 1. áfanga í Hamranesi
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…