Umsóknir í Sóley styrktarsjóð

Fréttir

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) auglýsa eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum Sóleyju vegna nýsköpunar- og samstarfsverkefna annars vegar á sviði umhverfis- og samgöngumála og hins vegar á sviði velferðar- og samfélags. Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2022.  

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) auglýsa eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum Sóleyju vegna nýsköpunar- og samstarfsverkefna annars vegar á sviði umhverfis- og samgöngumála og hins vegar á sviði velferðar- og samfélags. 

Verkefni eru meðal áhersluverkefna í Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins 

Framangreind verkefni eru meðal áhersluverkefna í
Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2020-2024 en markmiðið styrkveitinganna er að
hvetja til þátttöku atvinnulífsins í slíkum verkefnum og styðja við verkefni
sem tengja saman atvinnulíf og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og efla
samstarf þeirra. Í ljósi þess verða aðeins veittir styrkir til lögaðila, en
ekki einstaklinga. Fjármunir til úthlutunar úr sjóðnum
vegna hvers málaflokks um sig eru 5,0 milljónir kr. Hámarksfjárhæð úthlutunar
til einstakrar styrkumsóknar er 1,0 milljón kr. Starfsreglur sjóðsins og umsóknareyðublað
eru aðgengileg á vef SSH.  

Umsókn skal jafnframt fylgja 8-12 glæru kynning þar sem fram kemur:

  • Rökstuðningur
    þess að verkefnið sé nýsköpunarverkefni á sviði umhverfis- og samgöngumála eða
    velferðar- og samfélags og falli að ofangreindum markmiðum
  • Greinargóð
    lýsing á verkefninu, auk verk- og tímaáætlunar
  • Fjárhagsáætlun
    (kostnaðar- og tekjuáætlun), auk upplýsinga um aðra fjármögnun
  • Rökstuðningur
    þess að umsækjandi hafi faglega og fjárhagslega getu til að hrinda verkefninu í
    framkvæmd

Sé umsókn ekki til samræmis við framangreint
verður hún ekki tekin til efnislegrar meðferðar.

Styrkthegar2021_2Styrkþegar 2021: Björn Jónsson frá Markaðsstofu Kópavogs, Steinunn Guðbjörnsdóttir frá Exploring Iceland, Eva María Þórarinsdóttir Lange frá Pink Iceland og Þór Sigurðsson frá Expluria.

Umsóknarfrestur um styrki úr
sjóðnum fyrir árið 2022 er til og með 20. september.

Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir eigi síðar en 20. nóvember 2022.

Úthlutunarnefnd áskilur sér rétt til að
leggja til að öllum umsóknum verði hafnað.

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Hamraborg 9, 200 Kópavogi
Sími: 564 1788
Netfang: ssh@ssh.is

Ábendingagátt