Umsóknir um menningarstyrki

Fréttir

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna, viðburða og samstarfssamninga á sviði menningar og lista í Hafnarfirði. Umsóknarfrestur er til og með 13. september.

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna, viðburða og samstarfssamninga á sviði menningar og lista í Hafnarfirði. Umsóknum skal skila inn með rafrænum hætti til og með 13. september.

Tvisvar á ári auglýsir menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar eftir umsóknum um styrki til menningarstarfsemi og eflingar á hafnfirsku menningarlífi. Markmiðið er að styðja við menningarstarfsemi í samræmi við menningarstefnu bæjarins og styrkja einstaklinga og félagasamtök til lista- og menningarsköpunar. Listamenn, félagasamtök, stofnanir eða menningarviðburðir verða að tengjast Hafnarfirði á einhvern hátt. Með fastri búsetu, með því að viðburðurinn fari fram í Hafnarfirði eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar. Ekki er styrkt til ferðalaga, náms og rekstrar.

Í umsókn þarf eftirfarandi að koma fram:

  • Markmið, lýsing og tilefni umsóknar
  • Styrkupphæð
  • Tíma- og verkáætlun
  • Önnur fjármögnun
  • Kostnaðaráætlun

Menningar- og ferðamálanefnd metur umsóknir eftir markmiðum verkefna og hvernig þau nýtast til að efla fjölbreytt menningarlíf bæjarbúum og hafnfirskum listamönnum til góðs. Tekið er mið af raunhæfni verkefna, kostnaðaráætlun auk tíma- og verkáætlunar. Hægt er að sækja um samstarfssamning vegna lengri eða endurtekinna verkefna til allt að þriggja ára.

Hér má nálgast nánari upplýsingar um menningarstyrkina, úthlutunarreglur og hvað umsækjendur þurfa að hafa í huga

Umsóknum skal skila með rafrænum hætti í gegnum Mínar síður á vef Hafnarfjarðarbæjar: www.hafnarfjordur.is Athugið að til þess að sækja um þarf að skrá sig inn á Mínar síður. Aðstoð við skráningu er hægt að fá hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðar í síma: 585-5500 | netfang: hafnarfjordur@hafnarfjordur.is

Ábendingagátt