Umtalsverð lækkun á fasteignaskatti eldri borgara í Hafnarfirði

Fréttir

Afsláttur á fasteignaskatti ellilífeyris- og örorkuþega mun aukast umtalsvert á komandi ári samkvæmt tillögu sem bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í gær. Tekjuviðmið verða hækkuð og fleiri njóta afsláttar. Gert er ráð fyrir að hækkun viðmiða verði um 30% umfram 11,4% hækkun á launavísitölu árið 2016. 

 Afsláttur á fasteignaskatti
ellilífeyris- og örorkuþega mun aukast umtalsvert á komandi ári samkvæmt
tillögu sem bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í gær. Tekjuviðmið
verða hækkuð og fleiri njóta afsláttar. Gert er ráð fyrir að hækkun
viðmiða verði um 30% umfram 11,4% hækkun á launavísitölu árið 2016. 

Hjón mættu þannig hafa allt að 6.405.500 í laun til að njóta 100%
afsláttar. Heildarlaun hjóna mættu nema allt að 6.851.500 til að fá 75%
afslátt, allt að 7.297.700 til að fá 50% afslátt og allt að 7.742.300 til að fá
25%. Afsláttur fyrir einstaklinga er veittur frá 5.013.00 (100%) að
5.347.200 (25%) 

,,Með þessum aðgerðum er
verið að gera fleiri eldri borgurum í Hafnarfirði kleift að búa lengur í eigin
húsnæði en ella og tel ég að sveitarfélagið sé að sýna ákveðna forystu í þeim
efnum“, segir Rósa Guðbjartsdóttir formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar. ,,Það er
ánægjulegt að í ljósi bættrar afkomu og árangurs af hagræðingaraðgerðum
undanfarinna ára, sé með þessum hætti hægt að láta bæjarbúa njóta þess og mun
breytingin án ef koma mörgum vel. “

Bæjarráð samþykkti einróma að
vísa tillögunni til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

Ábendingagátt