Skarrðhlíðarhverfi

Um Skarðshlíðarhverfi

Skarðshlíð er fjölskylduvænt íbúðahverfi í Hafnarfirði sem liggur á flata og í brekku sunnan og vestan í Ásfjalli. Við hönnun og skipulag hverfisins var áhersla lögð á heildræna sýn, heildrænar götumyndir, vistvænt skipulag, sjálfbærni, grænt yfirbragð og fjölbreytt útisvæði. Stutt er í alla þjónustu, möguleikar á að starfa í heimabyggð miklir og mikil nálægð við uppland Hafnarfjarðar og fallegar náttúruperlur. Uppbygging í hverfi er þegar komin vel á veg.

Frumbyggjar fluttu í hverfið sumarið 2019 og þá þegar var starfsemi Skarðshlíðarskóla komin á fullt og leikskóli opnaður um haustið undir sama þaki. Sumarið 2020 var húsnæði skólasamfélagsins í Skarðshlíð fullbyggt og hýsir það í dag heildstæðan grunnskóla, fjögurra deilda leikskóla, tónlistarskóla og íþróttahús fyrir bæði skólastigin. Þjóna skólarnir og starfsemi skólanna nýrri byggð í Skarðshlíð og Vallahverfi að hluta. Einnig er framundan frekari uppbygging íþróttamannvirkja á Ásvöllum sem bætir enn nærliggjandi þjónustu og aðstöðu í hverfunum. Tvöföldun Reykjanesbrautar lauk í árslok 2020 og þá um vorið hófust framkvæmdir við Ásvallabraut sem tengir saman Vallahverfi, Skarðshlíðarhverfi og Ásland. Ásvallabrautin var opnuð á haustmánuðum 2021 og þar með urðu Skarðshlíð og hverfi innarlega á Völlunum betur tengd Kaldárselsvegi og Reykjanesbraut.

Vinsælt búsetusvæði með uppland Hafnarfjarðar í bakgarðinum

Blönduð byggð íbúðarhúsa

Í Skarðshlíð er blönduð byggð einbýlishúsa, parhúsa, raðhúsa og lágreistra fjölbýlishúsa. Lóðir fyrir fjöleignarhús standa á flata nálægt skólanum en byggðin greinist svo upp Skarðshlíðarbrekkuna með raðhúsum og parhúsum neðst og einbýlishúsum ofar þar sem landhalli er meiri. Hverfið er til þess fallið að taka á móti öllum, hvort sem um er að ræða pör, litlar eða stórar fjölskyldur eða eldri einstaklinga sem vilja minnka við sig en samt komast í nýtt húsnæði. Hverfisskólarnir, Skarðshlíðarskóli og Skarðshlíðarleikskóli, hafa þegar tekið til starfa og það undir sama þaki. Tónlistarskóli Hafnarfjarðar starfar einnig í húsnæðinu og hefur gert frá haustinu 2020.

Góðar samgöngur

Samgöngur milli hverfa eru nokkuð greiðar og sífellt að verða greiðari. Ný mislæg gatnamót eru komin í notkun auk þess sem tvöföldun Reykjanesbrautar lauk síðla hausts 2020. Ásvallabraut sem tengir hverfið við Kaldárselsveg opnaði haustið 2021 og greiðir hún fyrir umferð til og frá hverfinu.

Teikningar eru aðgengilegar í gegnum Kortavef bæjarins

Deiliskipulag má nálgast á Kortavef bæjarins – velja deiliskipulag í valstiku til hægri og finna svæði

Ábendingagátt