Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Á Út um allt má finna yfir 30 útivistarsvæði og 40 göngu- og hjólaleiðir um allt höfuðborgarsvæðið, og mun bætast í eftir því sem vefurinn þróast. Vefurinn er einfaldur í notkun og sýnir staðsetningu notanda á korti í rauntíma
Út um allt, nýr upplýsingavefur um útivistarmöguleika á höfuðborgarsvæðinu, var formlega tekinn í notkun á fundi stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH), mánudaginn 3. febrúar. Á vefnum utumallt.is er að finna yfirlit og upplýsingar um yfir 30 skemmtileg útivistarsvæði og 40 kortlagðar göngu- og hjólaleiðir, vítt og breytt um höfuðborgarsvæðið. Leiðum fylgja gagnlegar upplýsingar, til að mynda um erfiðleikastig og tímalengd, og getur notandi jafnframt séð eigin staðsetningu á korti og fylgt leið í rauntíma. Á síðunni er góð leitarvél og hægt er að sía eftir ýmsum breytum á borð við sveitarfélag, aðstöðu, þjónustu og aðgengi. Vefurinn, sem er bæði á íslensku og ensku, er samstarfsverkefni SSH og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.
Út um allt í Hafnarfirði
Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisinsog Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH.
„Eitt af leiðarljósum sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins er að stuðla að heilnæmu umhverfi og heilbrigðu lífi. Í því ljósi ákváðum við að þróa og setja upp vandaðan útivistarvef sem gefur yfirsýn yfir þá fjölbreyttu útivistarmöguleika sem höfuðborgarsvæðið býður upp á. Þeir verða þannig bæði sýnilegri og aðgengilegri fyrir íbúa. Við vonumst innilega til að vefurinn stuðli að aukinni hreyfingu, ánægju og nýtingu á grænum svæðum.“ segir Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH. Páll Björgvin bendir á að Út um allt tengist fleiri verkefnum sem stuðla að markmiðum sóknaráætlunarinnar, til að mynda Kortlagningu útivistarsvæða á höfuðborgarsvæðinu sem lauk árið 2023. Vefurinn er einnig tengdur samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og þeirri umfangsmiklu uppbyggingu hjóla- og göngustíga sem þar er kveðið á en síðan er hönnuð til að nýta hjóla- og göngustíganet höfuðborgarsvæðisins til framtíðar.
„Þetta hefur verið einstaklega skemmtilegt verkefni í þróun og hafa m.a. sjálfboðaliðar tekið þátt í kortlagningu slóða. Má sérstaklega nefna hjólreiðasamtökin Reiðhjólabændur sem merktu og skráðu fyrir okkur hjólaleiðir og flokkuðu eftir erfiðleikastigi, og færum við þeim bestu þakkir“ segir Páll Björgvin. Út um allt hefur verið tæp tvö ár í undirbúningi. Ráðist var í djúpa þarfagreiningu og var samráð haft við íbúa, sveitarfélögin, ferðaþjónustuna og aðra hagaðila á höfuðborgarsvæðinu, enda mikilvægt að vefurinn sé sniðinn að þörfum notenda. Vefurinn byggir á miðlægu skráningarkerfi og gagnagrunni Ferðamálastofu sem heldur utan um gönguleiðir og útivistarsvæði um land allt. Fyrirtækið Sjá – óháð ráðgjöf sá um undirbúning og þarfagreiningu en fyrirtækið Um að gera sá um hönnun og smíði. „Við munum nú halda áfram að þróa Út um allt og bæta við leiðum og skemmtilegum svæðum. Við hvetjum alla til þess að nýta sér vefinn og fara út og njóta náttúrunnar sem umvefur höfuðborgarsvæðið“ segir Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.
Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH í síma 821 8179
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…