Kjörstaðir og kjörskrá
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs hófst laugardaginn 30. apríl. Frá og með 9. júní fer atkvæðagreiðslan eingöngu fram í Perlunni í Öskjuhlíð, Reykjavík frá kl. 10:00 og 22:00.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs, sem fram fer 25. júní 2016, hófst við embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu laugardaginn 30. apríl. Frá og með 9. júní fer atkvæðagreiðslan eingöngu fram í Perlunni í Öskjuhlíð, Reykjavík. Þar verður opið alla daga milli kl. 10:00 og 22:00. Þó verður lokað föstudaginn 17. júní.
Á kjördag, laugardaginn 25. júní, verður opið milli kl. 10:00 og 17:00 fyrir kjósendur sem eru á kjörskrá utan höfuðborgarsvæðisins, segir í tilkynningu frá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.
Fáðu upplýsingar um hvar þú ert á kjörskrá HÉR
Hverjir eiga kosningarétt?
- Kosningarétt við forsetakosningarnar 25. júní 2016 eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og lögheimili eiga hér á landi
- Jafnframt eiga kosningarétt þeir íslenskir ríkisborgarar sem flutt hafa lögheimili sitt til útlanda eftir 1. desember 2007 og náð hafa 18 ára aldri á kjördag
- Þá eiga kosningarétt þeir íslenskir ríkisborgarar, sem flutt hafa lögheimili sitt til útlanda fyrir 1. desember 2007, enda hafi þeir sótt um það til Þjóðskrár Íslands fyrir 1. desember 2015
- Erlendir ríkisborgarar eiga ekki kosningarétt við forsetakosningar og eru því ekki á kjörskrá. Eina undantekningin eru danskir ríkisborgarar, sem eiga kosningarétt samkvæmt lögum nr. 85/1946, þ.e. þeir sem voru búsettir á Íslandi 6. mars 1946 eða einhvern tíma á síðustu 10 árum fyrir þann tíma.
- Kjósendur geta kannað hvar þeir eru á kjörskrá í forsetakosningunum 25. júní 2016. Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Í mörgum tilvikum birtast einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild.
- Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili þremur vikum fyrir kjördag, þann 4. júní 2016. Flutningur lögheimilis eftir þann tíma breytir ekki skráningu á kjörskrá.
Mynd: © DV ehf / Stefán Karlsson