Útboð á byggingarrétti – forval

Fréttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu útboði á byggingarrétti á lóðinni Lækjargata 2 – Dvergur – í Hafnarfirði. Fjöldi þátttakenda verður takmarkaður við fimm. 

Hafnarfjarðarbær
óskar eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu útboði á byggingarrétti á lóðinni
Lækjargata 2 – Dvergur – í Hafnarfirði.

Verkefni þess aðila sem samið verður
við, er að hann á sinn kostnað vinni nýtt deiliskipulag sbr. skipulagsforsögn
Hafnarfjarðarbæjar, hanni og byggi þar nýjar byggingar með öllum frágangi að
utan sem innan og fullbúinni lóð.

Fjöldi þátttakenda verður takmarkaður
við fimm og verði umsækjendur fleiri, verður dregið á milli hæfra umsækjenda. Bjóðandi
sem tekur þátt í útboðinu, skal leggja fram með tilboði sínu, samkeppnistillögu
að nýtingu lóðar, deiliskipulagi og byggingum ásamt verðtilboði (greiðslu)
fyrir byggingarrétt.

Umsókn
um afhendingu forvalsgagna skal senda á netfangið: stefan@vsb.is. Skilafrestur
og opnun umsókna um þátttöku er þriðjudaginn 28. mars kl. 11.

Nánari upplýsingar veitir umhverfis- og skipulagsþjónusta.

Ábendingagátt