Útboð í gatnagerð Ásvallabrautar heimilað
Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs þann 15. janúar 2020 heimilaði ráðið útboð á gatnagerð Ásvallabrautar til tveggja ára. Heimildin felur í sér útboð á gatnagerð á Ásvallabraut frá Kaldárselsvegi að Skarðshlíð.
Á fundi umhverfis – og framkvæmdaráðs þann 15. janúar síðastliðinn
heimilaði ráðið útboð á gatnagerð Ásvallabrautar til tveggja ára. Heimildin
felur í sér útboð á gatnagerð á Ásvallabraut frá Kaldárselsvegi að Skarðshlíð.
Framkvæmdin inniheldur lagningu nýs vegar frá nýju hringtorgi við Kaldárselsveg
að Nóntorgi í Skarðshlíð, gerð stíga, lagna og hljóðmana. Ráðgert er að framkvæmdin
muni hefjast fyrri part þessa árs og standa yfir í tvö ár. Framkvæmdin er í
samræmi við samþykkt deiliskipulag. Gera má ráð fyrir að útboð fari í auglýsingu á næstu vikum.
