Útboð – jarðvinna við Sólvang

Fréttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í jarðvinnu vegna byggingar nýs hjúkrunarheimilis við Sólvang í Hafnarfirði. Verkefnið felur í sér uppgröft á lausum jarðvegi, losun á klöpp ásamt brottakstri, upprif á byggingarefnum sem fyrir eru, breytingar á lögnum og varnargirðingu umhverfis vinnusvæðið. Verklok eru 10. mars 2017.

Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í jarðvinnu
vegna byggingar nýs hjúkrunarheimilis við Sólvang í Hafnarfirði. Verkefnið felur í sér jarðvinnu, þ.e. uppgröft á
lausum jarðvegi, losun á klöpp ásamt brottakstri, upprif á byggingarefnum sem
fyrir eru, breytingar á lögnum og varnargirðingu umhverfis vinnusvæðið.

Helstu magntölur eru:

  • Uppgröftur á
    lausum jarðvegi        500 m3
  • Losun á klöpp                             4.000 m3
  • Girðingar                                       300 m

Útboðsgögn eru seld í Þjónustuveri
Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, verð kr. 5.000.-Tilboð verða opnuð hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar að Norðurhellu 2, þriðjudaginn 3. janúar
2017, kl. 11:00. 

Verklok eru 10. mars 2017.

Upplýsingar veita Sigurður Haraldsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsþjónustu:

siggih@hafnarfjordur.is og Stefán Veturliðason, byggingaverkfræðingur og framkvæmdastjóri VSB verkfræðistofu: stefan@vsb.is

Ábendingagátt