Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Aðildarfélög ÍBH fengu í gær 11 milljóna króna úthlutun Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar til íþróttastarfs fyrir yngri en 18 ára. Jafnréttishvataverðlaun 2019 hlutu Brettafélag Hafnarfjarðar fyrir mestu prósentufjölgun stúlkna og Fimleikafélagið Björk fyrir mestu iðkendafjölgun stráka.
Aðildarfélög ÍBH fengu í gær 11 milljóna króna úthlutun Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar til íþróttastarfs fyrir yngri en 18 ára. Upphæð úthlutunar til hvers félags stýrist annarsvegar af jafnréttishvata og hinsvegar af þeim iðkendafjölda sem æfir reglulega í félögunum. Jafnréttishvataverðlaun 2019 hlutu Brettafélag Hafnarfjarðar fyrir mestu prósentufjölgun stúlkna og Fimleikafélagið Björk fyrir mestu iðkendafjölgun stráka.
Úthlutun íþróttastyrkja fyrir yngri en 18 ára iðkendur aðildarfélaga ÍBH fór fram þriðjudaginn 4. júní sl. samkvæmt samningi milli Íþróttabandalagsins í Hafnarfirði (ÍBH), Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar. Athöfn fór fram í höfuðstöðvum Rio Tinto á Íslandi í Straumsvík þar sem fulltrúar félaganna tóku á móti styrkjunum. Samningur á milli Íþróttabandalagsins í Hafnarfirði, Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar um úthlutun íþróttastyrkja hefur verið í gildi frá árinu 2001. Samningar hafa verið gerðir til þriggja ára í senn og er nýjasti samningurinn frá árinu 2017 og lýkur honum í árslok 2019. Rio Tinto og Hafnarfjarðarbær greiða 10 milljónir á ári hvor aðili inn í samstarfið til stuðnings íþróttum barna og unglinga í Hafnarfirði. Í dag er verið að úthluta fyrri úthlutun ársins úr sjóðnum eða 60% vegna iðkendafjölda sem æfir reglulega í félögunum og jafnréttishvata, samtals 12 milljónir. Óskað var eftir umsóknum frá aðildarfélögum ÍBH í aprílmánuði og sóttu 12 félög um stuðning úr sjóðnum.
Eftirtalin félög fengu stuðning út frá samningi og umsóknum:
Jafnréttishvataverðlaun 2019 hlutu Brettafélag Hafnarfjarðar kr. 500.000 fyrir mestu prósentufjölgun þess kyns sem hallaði á (stúlkur) og Fimleikafélagið Björk kr. 500.000 fyrir mestu iðkendafjölgun þess kyns sem hallaði á (strákar).
Við óskum aðildarfélögum innilega til hamingju!
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…