Vegna trjágróðurs á lóðamörkum

Fréttir

Við viljum góðfúslega minna íbúa á að snyrta trjágróður á sínum lóðarmörkum en töluvert hefur borið á ábendingum um gróður sem vex langt út á gangstéttar og götur og hindrar bæði sýn og umferð.

Byggingarfulltrúi og  garðyrkjustjóri Hafnarfjarðar vilja góðfúslega minna íbúa á að snyrta trjágróður á sínum lóðarmörkum. Töluvert hefur borið á ábendingum þar sem gróðurinn vex langt út á gangstéttar og götur og hindrar bæði sýn og umferð. Getur þetta valdið óþægindum og hættu fyrir þá sem leið eiga um. Það sem þarf að hafa í huga er að:

  • Umferðarmerki séu sýnileg.
  • Gróður byrgi ekki götulýsingu.
  • Gangandi og hjólandi eigi greiða leið um gangstíga.
  • Þar sem vélsópar og snjóruðningstæki fara um má lágmarkshæð gróðurs yfir stígum ekki vera lægri en 2,8 metrar.
  • Yfir akbrautum má gróður ekki slúta niður fyrir 4,2 metra og gildir þessi hæðarregla einnig þar sem sorphirðubílar, slökkvilið og sjúkrabílar þurfa að komast eftir stétt eða stíg.

 

Trjágróðri sé haldið innan lóðarmarka

Byggingarreglugerð setur garðeigendum þá skyldu á herðar að halda gróðri innan lóðarmarka. Í reglugerðinni nr. 112/2012 gr. 7.2.2  segir: „Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa eða runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götu, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun”. 

Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi og
Ingibjörg Sigurðardóttir garðyrkjustjóri Hafnarfjarðar.

Ábendingagátt