Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Tónlistar- og bæjarhátíðin Hjarta Hafnarfjarðar hefst í dag. Fjölbreytt tónlistardagskrá og verður stjarna Björgvins afhjúpuð í kvöld kl. 19. Athöfnin er öllum opin!
Tónlistar- og bæjarhátíðin Hjarta Hafnarfjarðar hefst í dag. Þessi lengsta tónlistarhátíð landsins er faglegt og flott framtak þeirra Páls Eyjólfssonar og Péturs Stephensen sem hafa rekið menningarhúsið Bæjarbíó síðustu ár. Fjölbreytt tónlistardagskrá verður bæði inni og úti á sérstöku útisvæði sem búið er að koma upp á bílastæði við Bókasafn Hafnarfjarðar.
Stjarna Björgvins verður afhjúpuð í kvöld kl. 19 og er athöfnin öllum opin.Nánari upplýsingar um veisluna næstu daga er að finna HÉR
Hjarta Hafnarfjarðar hefst í kvöld með afhjúpun á stjörnu Björgvins Halldórssonar á gangstétt fyrir utan Bæjarbíó. Jónatan Garðarsson mun sjá um að setja hátíðina með hátíðarræðu um Björgvin sem er einn fremsti söngvari landsins, fæddur og uppalinn í Hafnarfirði. Öflugt tónleikahald hefur verið í Bæjarbíó undanfarin ár og hefur Björgvin sjálfur troðið þar upp en í kvöld munu fjölmargt listafólk troða upp til heiðurs stjörnunni Björgvini en fjölmargt tónlistarfólk á heima í Hafnarfirði eða á ættir sínar að rekja þangað. Það verða þó ekki bara Hafnfirðingar sem troða upp í kvöld heldur einnig vinir Hafnarfjarðar. Þetta er þriðja árið sem tónlistarhátíðin Hjarta Hafnarfjarðar er haldin og hefur hátíðin vaxið og dafnað með hverju árinu og er í dag orðin ein stærsta slík tónlistarhátíð sem bæjarfélag stendur að.
Björgvin Halldórsson hlaut nafnbótina bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2018 . Björgvin hefur fengið fjöldan allan af viðurkenningum og nafnbótum um árin. Þá hefur hann verið sæmdur heiðursverðlaunum Íslensku tónlistarverðlauna auk þess að vera handhafi riddarakross hinnar íslensku Fálkaorðu. Björgvin Halldórsson er fæddur í Hafnarfirði 16. apríl 195 og hóf feril sinn með hafnfirsku hljómsveitinni Bendix og síðan tók við sannkallað ævintýri með hljómsveitum á borð við Flowers, Ævintýri, Brimkló, Changes, HLH flokknum og fleiri. Björgvin var valinn poppstjarna ársins árið 1969 – sá eini sem hefur hlotið þann titil. Björgvin hefur í gegnum tíðina brugðið fyrir sig poppi, rokki, kántrý, ballöðusöng og Júróvisjón – að ógleymdum jólalögunum. Björgvin er söngvari, lagahöfundur, upptökustjóri og hljómplötuframleiðandi. Hann hefur tekið upp fleiri hundruð lög á ferlinum sem nú spannar hálfa öld.
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…