Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Þann 2. október síðastliðinn var haldið í Kaplakrika í Hafnarfirði 62. ársþing FRÍ í góðu samstarfi við frjálsíþróttadeild FH og Hafnarfjarðarbæ. Þingið var óvanalegt á margan hátt og hafði verið frestað í tvígang.
Þann 2. október síðastliðinn var haldið í Kaplakrika í Hafnarfirði 62. ársþing FRÍ í góðu samstarfi við frjálsíþróttadeild FH og Hafnarfjarðarbæ. Þingið var óvanalegt á margan hátt. Því hafði tvívegis verið frestað áður en var nú haldið í skugga Covid19 en þannig að sóttvarnir voru í hávegum hafðar. Brotið var blað með beinu streymi frá þinginu sem og því að ársþingið tók aðeins einn dag, en ekki tvo, líkt og jafnan hefur áður hefur verið.
Freyr Ólafsson formaður FRÍ bauð gesti velkomna klukkan 17:00 og setti þingið. Þingforsetar voru kjörnir þeir Gunnlaugur Júlíusson og Gunnar Svavarsson, sem steig inn í fjarveru Bjargar Ágústsdóttur. Þingritarar voru kjörin þau Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Eiríkur Mörk Valsson.Góðir gestir ávörpuðu þingið en það voru þau Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Ágúst Bjarni Garðarsson formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, Hafsteinn Pálsson annar varaforseti ÍSÍ og Úlfar Linnet formaður frjálsíþróttadeildar FH.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- menningarmálaráðherra
Ágúst Bjarni Garðarsson formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar
Á þinginu voru þrír leiðtogar úr hreyfingunni til áratuga gerð að heiðursfélögum FRÍ. Það voru þau Ragnheiður Ólafsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson og Þráinn Hafsteinsson. Ýmsar aðrar heiðursviðurkenningar voru veittar. Nánar verður fjallað um heiðursveitingarnar á FRI.is
Á þinginu voru afgreiddar 25 tillögur um reglugerða- og lagabreytingar. Vegna fyrirkomulags þings var mörgum vísað áfram til stjórnar eða starfsnefnda. Á þinginu var kjörin ný stjórn og formenn nefnda sambandsins. Ný inn í aðalstjórn kemur Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, en áfram sitja Guðlaug Baldvinsdóttir, Gunnar Svavarsson og Kári Steinn Karlsson. Formaður sambandsins, Freyr Ólafsson, var endurkjörinn til næstu tveggja ára. Á þinginu var einnig kynnt nýtt auðkennismerki og ásýnd fyrir nýja tíma.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…