Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Sannkallað jólaævintýraland er risið í Hellisgerði, þessum nær 100 ára gamla og gullfallega lystigarði Hafnfirðinga í miðbæ Hafnarfjarðar. Við inngang í Hellisgerði frá Reykjavíkurvegi er nú búið að reisa stórt rautt jólahjarta og síðan tekur við ævintýraveröld ljósa og lystisemda.
Sannkallað jólaævintýraland er risið í Hellisgerði, þessum nær 100 ára gamla og gullfallega lystigarði Hafnfirðinga í miðbæ Hafnarfjarðar. Við inngang í Hellisgerði frá Reykjavíkurvegi er nú búið að reisa stórt rautt jólahjarta og síðan tekur við ævintýraveröld ljósa og lystisemda. Ljósaseríur og ljósafígúrur sem gleðja augað og andann. Hjónin og Hafnfirðingarnir Jóhanna Guðrún og Davíð Sigurgeirsson sáu um að „opna“ jólaævintýralandið með fallegu jólalagi í upphafi vikunnar og fengu gestir garðsins á þeim tímapunkti að njóta.
Hjónin Jóhanna Guðrún og Davíð Sigurgeirsson tóku lagið fyrir gesti og gangandi í upphafi vikunnar .
Á þessari óvenjulegu aðventu þar sem engir opnir viðburðir eða skipulögð dagskrá er í boði þá var ákveðið að færa og framlengja jólaanda, jólabirtu og jólagleði jólabæjarins og Jólaþorpsins í Hafnarfirði yfir í Hellisgerði. Þannig vildu bæjaryfirvöld og starfsfólk finna leið til að skapa öðruvísi og einstaka upplifun og aðlaðandi vettvang til útivistar og samveru með nánustu fjölskyldunni eða „jólakúlunni“ eins og þríeykið segir. Hönnun og hugmyndavinna hófst í nóvember og fékk hópurinn listamanninn og Hafnfirðinginn Anthony Bacigalupo, sem fæddur er og uppalinn í Kaliforníu, til liðs við sig og hefur hópurinn ásamt öðrum fagaðilum unnið að uppsetningu síðustu daga og vikur.
Sannkallað jólaævintýraland er risið í Hellisgerði. Fjölmargir starfsmenn sveitarfélagsins hafa komið að hönnun og uppsetningu með aðstoð ráðgjafa og annarra fagaðila. Samstarf sem er að skila frábærum afrakstri.
Hér má sjá bæjarstjóra Hafnarfjarðar, Rósu Guðbjartsdóttur, með listaparinu Jóhönnu og Davíð og Anthony Bacigalupo sem kom að verkefninu sem ráðgjafi.
Það er óhætt að segja að framkvæmdin sé að vekja verðskuldaða athygli og ánægju og hefur umferð um garðinn verið mikil það sem af er desembermánuði og þá ekki síst síðustu daga. Mikið af fólki leggur leið sína um garðinn á göngu sinni um jólabæinn auk þess sem sjá má fjölskyldur í nestisferð með kakó og jólakökur, börn við létt hraunklifur og hellaskoðun og við það að skauta á tjörninni sem er liggur í botni garðsins. Einhverjir hafa verið í ævintýraferð og í leit að álfum og huldufólki enda segir sagan að þar búi mikill fjöldi álfa og huldufólks. . Álfabúðin í Hellisgerði er opin allar aðventuhelgarnar frá kl. 12-17 en þar er hægt að versla fallegt handverk og hönnun og gæða sér á álfakakói og piparkökum. Þessi gullfallegi garður hefur að geyma margar sögurnar og minningarnar fyrir Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar og mun án efa skapa nýjar og góðar minningar þessa aðventuna.
Álfabúðin í Hellisgerði er opin um helgar allar aðventuna frá kl. 12-17. Grímuskylda er í búðinni.
Hellisgerði er garður og sameign allra Hafnfirðinga og vonir standa til þess að allir taki virkan þátt í að vernda og passa upp á þessa fallegu náttúruperlu og þá líka þá ljósadýrð sem opin er öllum þessa jólahátíðina. Securitas mun jafnframt aðstoða Hafnfirðinga við vöktun. Gestir eru beðnir um að huga vel að öllum sóttvörnum í garðinum (sem og á öðrum ferðum sínum um jólabæinn) og nota grímur ef ekki reynist unnt að viðhalda 2 metra fjarlægð.
Taktu þátt í laufléttum og snjöllum ratleik um Hellisgerði.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…