Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Magnús Bjarni Baldursson hefur verið ráðinn verkefnastjóri nýrrar Markaðsstofu Hafnarfjarðar til sex mánaða. Magnús Bjarni var ráðinn úr hópi um fimmtíu umsækjenda.
Magnús Bjarni hefur umtalsverða reynslu af markaðsmálum, uppbyggingu vörumerkja, auglýsingamiðlun og stjórnunarstörfum. Að auki hefur hann starfað við háskólakennslu, setið í stjórnum fyrirtækja og var formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa um tíma. Magnús Bjarni hefur BS gráðu í raunvísindum frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í hagrænni aðferðafræði frá York University í Toronto, Kanada.
Magnús mun starfa með undirbúningsstjórn Markaðsstofunnar við að skilgreina hlutverk hennar, undirbúa formlega stofnun, virkja samvinnu bæjarins, fyrirtækja og íbúa auk þess að vinna að stefnumörkun stofunnar.
„Við erum virkilega ánægð með að hafa fengið reynslumikinn aðila með víðtæka þekkingu á markaðsmálum til liðs við okkur. Bæjarfélagið og samfélagið hér í Hafnarfirði bindur miklar vonir við Markaðsstofu Hafnarfjarðar sem stefnt er að því að stofna formlega í haust“ segir Haraldur Líndal Haraldsson bæjarstjóri.
„Ég er afar spenntur fyrir því að fá tækifæri til að koma að þessu góða verkefni. Ég hlakka til að vinna með Hafnfirðingum að því að gera góðan bæ enn betri. Það eru sérstök tækifæri mjög víða í Hafnarfirði og ég finn fyrir miklum krafti á þessum vettvangi hér í bænum.“ segir Magnús Bjarni Baldursson Hann hefur störf 5. júní n.k.
Unnið er að formlegri stofnun Markaðsstofu Hafnarfjarðar sem áætlað er að taki til starfa á haustmánuðum. Markaðsstofa Hafnarfjarðar mun verða leiðandi í að gera Hafnarfjörð að öflugum valkosti fyrir fólk og fyrirtæki til búsetu, atvinnu og afþreyingar. Með eflingu samstarfs íbúa, fyrirtækja, félaga og bæjaryfirvalda verður Markaðsstofan einnig vettvangur skoðanaskipta um hvernig gera megi góðan bæ enn betri. Nánari upplýsingar veitir Kristín Thoroddsen formaður stjórnar Markaðsstofu Hafnarfjarðar í síma 821 132
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…
Fjórða helgin okkar í Jólaþorpinu verður yndisleg. Veðrið mun leika við gesti en fyrst og fremst munu allar þær gersemar…
Börn fá frístundastyrk frá þriggja ára aldri. 10,6 milljarðar verða settir í fjárfestingar. Einnig verður sett fjármagn í uppbyggingu nýs…
Hjörtu okkar Hafnarfjarðar skarta fjólubláum lit í dag á alþjóðadegi fatlaðs fólks. Dagurinn er 3. desember ár hvert til að…
Menntastefna Hafnarfjarðarbæjar var kynnt á starfsdegi astarfsfólks frístundar-, grunnskóla- og leikskóla Hafnarfjarðarbæjar þann 14. nóvember. Þátttakendur gátu valið um ólíka…
Ný stefna um móttöku skemmtiferðaskipa í Hafnarfirði hefur verið samþykkt af bæjarráði. Stefnan gildir til 2035.
Um 30 útskrifuðust úr Leiðtogaskóla Hafnarfjarðarbæjar á dögunum. Nú hafa 90 stjórnendur bæjarins útskrifast. Kennslan eflir bæjarbraginn.
Mæðgurnar Lára Alda Alexandersdóttir og Silja Þórðardóttir lærðu saman að verða gusumeistarar. Þær nota kraftana í Herjólfsgufunni við Langeyrarmalir.
„Ég finn að Hafnfirðingar eru stoltir af Jólabænum og Jólaþorpinu á Thorsplani,“ segir Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri Jólaþorpsins sem orðið er…