Verkefnið “Göngum í skólann” hefst 8. september

Fréttir

Verkefnið Göngum í skólann hefst miðvikudaginn 8. september í fimmtánda sinn og lýkur því formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 6. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.

Verkefnið Göngum í skólann ( www.iwalktoschool.org ) hefst  í miðvikudaginn 8. september í fimmtánda sinn og lýkur því formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 6. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.

GongumIskolann2020

Þátttakendur í yfir 40 löndum

Á hverju ári taka milljónir barna í yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt og fyrsta árið voru þátttökuskólarnir 26 en alls 75 skólar skráðu sig til leiks árið 2020. Á vef verkefnisins – www.gongumiskolann.is – er að finna allar nánari upplýsingar um verkefnið en þar má meðal annars finna skemmtilegar útfærslur nokkurra skóla á Íslandi á verkefninu auk ýmiss annars efnis frá þátttökuskólunum.

GongumISkolann

Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur alla skóla í Hafnarfirði, foreldra og börn til virkrar þátttöku í verkefninu næsta mánuðinn! Það er hollt og gott að ganga í skólann!

Ábendingagátt