Verkfæri sem veitir aðhald og stuðning í rauntíma 

Fréttir

Sprotasjóður leik-, grunn- og framhaldsskóla úthlutaði nýverið styrkjum að andvirði 80,8 m.kr. til þrjátíu skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2025–2026. Styrkirnir voru afhentir við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu um miðjan júní. Hafnarfjarðarbær fékk 3,8 milljóna króna styrk í verkefnið Lestrarhvatning til lestraráhuga og námsárangurs sem unnið er með sprotafyrirtækinu Beanfee ehf.  

Úthlutun úr Sprotasjóði 2025 

Sprotasjóður leik-, grunn- og framhaldsskóla úthlutaði nýverið styrkjum að andvirði 80,8 m.kr. til þrjátíu skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2025–2026. Styrkirnir voru afhentir við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu um miðjan júní. Hafnarfjarðarbær fékk 3,8 milljóna króna styrk í verkefnið Lestrarhvatning til lestraráhuga og námsárangurs sem unnið er með sprotafyrirtækinu Beanfee ehf.  

Hvatningarkerfi til lesturs hjá börnum í grunnskólum bæjarins 

Hafnarfjarðarbær, í samstarfi við sprotafyrirtækið Beanfee ehf., mun á næstu misserum vinna markvisst að því að setja upp hvatningarkerfi til lesturs hjá börnum í grunnskólum bæjarins. Markmiðið er hjálpa fleiri nemendum að ná tökum á lestri, með áherslu á lestur á heimilum, þ.e. bæði sem hluta af námi í grunnskóla og annan lestur, sérstaklega yndislestur. Verkefnið færir sérsniðið verkfæri Beanfee til að hjálpa þeim börnum sem þurfa á sérstakri hvatningu og stuðningi að halda við lesturinn.  

Tvöfalt verðlaunakerfi í formi umbunar og afreksmerkja  

Beanfee ehf. hefur undanfarin ár unnið að þróun á sérstöku verkfæri í samstarfi við sveitarfélagið og Háskóla Íslands og hafa rannsóknir á vegum HÍ þegar sýnt fram á góða virkni þess sem stuðningur við nám og jákvæða hegðun. Beanfee er tilraun Helga Sigurðar Karlssonar til að nota gagnreyndar aðferðir atferlisgreiningar til lausnar á hegðunar- og námsvanda.  Verkfærið sem um ræðir er hugbúnaður sem tengir nemanda í þjálfun við starfsfólk skóla og forsjáraðila, með það að markmiði að veita aðhald og stuðning í rauntíma. Til að hvetja nemandann til dáða er sett upp tvöfalt verðlaunakerfi í formi umbunar og afreksmerkja, sem skóli og heimili sjá um að fylgja eftir í sameiningu. Beanfee býður einnig upp á öfluga upplýsingamiðlun sem fræðir notendur um það sem þeir þurfa að vita til að ná árangri. Rannsóknir, sem og reynslusögur úr hafnfirsku skólasamfélagi,gefa til kynna að með Beanfee sé hægt að ná árangri í ýmsum málum sem snúa að hegðunar- og námshvatavanda og áður hafa reynst erfið úrlausnar. Beanfee stefnir að áframhaldandi rannsóknum á virkni hugbúnaðarins með Háskóla Íslands. 

Stuðningur við þróun og nýjungar í skólastarfi 

Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Umsýsla er hjá Rannís. 

Tilkynning á vef Rannís

Eldri tilkynning um Beanfee á vef Hafnarfjarðarbæjar 

Ábendingagátt