Verkfræðihönnun við Sólvang
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkfræðihönnun vegna byggingar nýs hjúkrunarheimilis við Sólvang í Hafnarfirði. Tilboð verða opnuð mánudaginn 19. september 2016 kl. 11:00.
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkfræðihönnun vegna byggingar nýs hjúkrunarheimilis við Sólvang í Hafnarfirði.
Byggingin verður um 4.000 m2 að flatarmáli, 3 hæðir og kjallari að hluta. Í verkfræðihönnun felst hönnun burðarvirkja, jarðvinnu, lagnakerfa, loftræsikerfa, rafkerfa, hljóðvistar og bruna. Einnig að hanna breytingar á fráveitulögnum á lóð.
Miðað er við að útboð vegna framkvæmda verði í áföngum, það fyrsta 2. desember 2016 og það síðasta 5. maí 2017. Hönnunarvinna þarf að hefjast strax og samningur er kominn á við ráðgjafa. Rafræn útboðsgögn verða afhent hjá VSB Verkfræðistofu ehf., netfang: vsb@vsb.is frá og með mánudegi 5. september 2016.
Tilboð verða opnuð á sama stað, mánudaginn 19. september 2016, kl. 11:00.