Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Verkefnið snýr að umhirðu og fegrun bæjarins. Félögum og hópum í Hafnarfirði stendur til boða að vakta umhverfið og taka að sér að sjá um hreinsun á skilgreindu landsvæði, gegn fjárstyrk. Aðeins tólf hópar komast að í hvert skipti.
Umhverfisvaktin snýr aftur. Verkefnið snýr að umhirðu og fegrun bæjarins og er markmiðið sem fyrr að efla umhverfisvitund íbúa, fegurri bær og aukin hreinsun. Félögum og hópum í Hafnarfirði stendur til boða að vakta umhverfið, þ.e. taka að sér að sjá um hreinsun á skilgreindu landsvæði, gegn fjárstyrk til starfseminnar. Aðeins tólf hópar komast að í hvert skipti.
Hafnarfirði hefur verið skipt upp í tólf svæði. Á hverju svæði er lögð áhersla á að hreinsa rusl og drasl með aðalstígum og stofnbrautum, með lækjum/tjörnum, strandlengju, á náttúrulegum hraunasvæðum og opnum/grænum rýmum. Þeir hópar sem fyrir valinu verða hreinsa sitt svæði tvisvar sinnum á ári, einu sinni á tímabilinu 2.- 31. maí og einu sinni á tímabílinu 1. – 27. september.
Sjá svæðaskiptingu hér
Hverjir geta verið á vaktinni?
Öllum félögum, samtökum og hópum í Hafnarfirði stendur til boða að sækja um þátttöku í Umhverfisvaktinni. Á hverju svæði er einn hópur og geta alls tólf hópar gengið til samstarfs við bæinn í verkefninu. Við úthlutun á svæðum verður tekið tillit til samsetningar hópsins og gerðar svæðis, þ.e. hvernig það er yfirferðar. Hver hópur skal hafa hópstjóra sem sér um samskipti við Framkvæmdasvið bæjarins og skipuleggur í samráði við það hvenær farið er í hreinsun og hvernig staðið verður að henni. Sæki hópar skipaðir börnum eða unglingum um þátttöku (t.d. yngri flokkar íþróttafélaga eða skátaflokkar) er sett það skilyrði að hópstjóri og ábyrgðaraðili sé fullorðinn og ennfremur að fullorðnir starfi með börnunum við hreinsunina. Ástæður þess eru fyrst og fremst öryggiskröfur þar sem hreinsunin mun fara fram þar sem hættur geta leynst nærri s.s. við umferðargötur, læk og strönd.
Í umsókn hópa þurfa meðfylgjandi upplýsingar að koma fram:
Starfsmenn Framkvæmdasviðs Hafnarfjarðar hafa eftirlit með framkvæmd og vinnu á hverju svæði fyrir sig, meta hvernig staðið er að framkvæmd og koma með tillögur til úrbóta eftir því sem ástæða er til svo og sjá um að koma ruslinu til förgunar. Hægt er að fá ruslapoka hjá Framkvæmdasviði, óski hópar eftir því.
Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2015.
Umsóknir eiga að berast til: ishmael@hafnarfjordur.is.
Frekari upplýsingar veitir þjónustuver bæjarins að Strandgötu 6 í s: 585-5500 og Ishmael David: ishmael@hafnarfjordur.is
Síðasta Jólaþorps-helgin er nú hafin. Fjölmargt að sjá og gera. Yndislegt er að stækka enn upplifunina með því að kíkja…
Ný skammtímadvöl fyrir fötluð börn, sem tók til starfa í Hafnarfirði í haust, var formlega opnuð í vikunni þegar starfsfólk…
Rósa Guðbjartsdóttir sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund sem bæjarstjóri á miðvikudag. Ráðningasamningur við nýjan bæjarstjóra var undirritaður á fundinum. Rósu voru…
Hátt í sjötíu voru samankomin í undirgöngunum við Hörðuvelli á föstudagseftirmiðdag þegar Byggðasafn Hafnarfjarðar opnaði sýninguna sína Köldu ljósin. Sýningin…
Gleði, eftirvænting, friður, minningar og endurfundir eru hugtök sem eiga við dæmigerð íslensk jól, ritar Arnór Bjarki Blomsterberg, sóknarprestur í…
Söfn og stofnanir bæjarins verða opin á eftirfarandi dögum og tímum yfir hátíðarnar. Löng útlán á DVD myndum gilda á…
Bestu stundirnar um jólin leynast oft í stundlaugum bæjarins. Sundlaugar Hafnarfjarðar verða opnar um jól og áramót sem hér segir.
„Við systkinin erum öll orðin svo gott sem fullorðin og tvö komin á fertugsaldur, en öll viljum við hvergi annars…
Nýr sex deilda leikskóli verður tekinn í notkun í Hamranesi á árinu 2025 sem og nýtt knatthús að Ásvöllum og…
Hvað er betra en að kynnast sögunni á hlaupum? Nú eru aðeins tveir dagar í Kaldárhlaupið, 10 km hlaup í…