Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Í Vesturbænum eru nú þegar fjöldi húsa sem falla undir lög um menningarminjar. Fyrri samráðsfundur af tveimur vegna skipulagsvinnu er snýr annars vegar að Vesturbæ Hafnarfjarðar og hins vegar Verndarsvæðis í byggð, var haldinn í Hafnarborg 5. mars og sá seinni verður haldinn þriðjudaginn 31. mars kl. 17.
Í Vesturbænum eru nú þegar fjöldi húsa sem falla undir lög um menningarminjar
Fyrri samráðsfundur af tveimur vegna skipulagsvinnu er snýr annars vegar að Vesturbæ Hafnarfjarðar og hins vegar Verndarsvæðis í byggð, var haldinn í Hafnarborg 5. mars og sá seinni verður haldinn þriðjudaginn 31. mars kl. 17 og verður í beinu streymi á vef og Facebook síðu Hafnarfjarðarbæjar. Á þeim fundi verður hugmyndavinna er snýr að deiliskipulagi svæðisins kynnt íbúum Hafnarfjarðar, sem gefst tækifæri til að skoða og koma með spurningar á meðan beint streymi á sér stað. Bæjarblaðið Hafnfirðingur ræddi við Gunnþóru Guðmundsdóttur, arkitekt og verkefnastjóra hjá umhverfis- og skipulagssviði.
Kort af Vesturbænum
Þegar nýtt eða endurskoðað deiliskipulag er unnið á að fara fram annars vegar húsakönnun og hins vegar fornleifaskoðun, sem Minjastofnun þarf síðan að samþykkja. Byggðasafn Hafnarfjarðar og Gláma Kím arkitektar hafa unnið að húsakönnun fyrir Vesturbæinn þar sem öll hús innan skipulagssvæðisins eru skráð. Húsakönnunin verður gerð aðgengileg fyrir íbúa þegar þar að kemur en verið er að leggja lokahönd á þá vinnu.
Úr kynningunni um Vesturbæ sem verndarsvæði
Skipulagsvinnan hófst árið 2016, sem gengur út á endurskoðun deiliskipulags Vesturbæjar. Stefnt er að því að hluti innan skipulagssvæðisins verði að Verndarsvæði í byggð í samræmi við lög nr 87/2015. Markmið verndarsvæðisins er að stuðla að vernd og varðveislu byggðar sem hefur sögulegt gildi. „Í samræmi við lög um verndarsvæði, sem tóku gildi 2015, verðum við sem sveitarfélag að finna stað sem við ætlum að horfa til að verði verndarsvæði í byggð. Þá fannst okkur tilvalið að velja Vesturbæinn því hann er einstakur á landsvísu.
Með verndarsvæði í byggð segir Gunnþóra að verið sé að búa til nokkurs konar uppskrift og fólk geti leitað sér upplýsinga og skoðað leiðbeiningarit þannig að hægt sé að fara réttu leiðina í að breyta og bæta. „Það er sama hvort hús er byggt 1880 eða 2000, það þarf alltaf að fá leyfi til að breyta húsum. Í Vesturbænum eru nú þegar fjöldi húsa sem falla undir lög um menningarminjar.
Byggingarár húsa í Vesturbæ
En það eru í raun þrír flokkar er varða húsin. Hús byggð 1925 og fyrr eru umsagnarskyld. Minjastofnun Íslands veitir umsögn sem er leiðbeinandi. Hús sem hafa náð 100 ára aldri eru friðuð og ekki er heimilt að samþykkja breytingar á þeim nema með samþykki MÍ. Síðan eru það friðlýstu húsin, en öll hús sem voru friðuð fyrir gildistöku nýrra laga árið 2013 falla í þennan flokk. Hús eru friðlýst með undirskrift ráðherra að undangenginni tilheyrandi forvinnu. Friðlýst hús eru óháð aldri en hafa e.t.v. sögulegt gildi eða teljast hátt skrifuð út frá byggingarlist. Friðun húsa hafi oft verið mistúlkuð sem eitthvað slæmt en í raun setji friðun húsa þau á ákveðinn stall. Þar sem slíkum húsum er vel við haldið hefur það haft áhrif á jafnvel söluverð annarra eigna í sömu götu. Um það eru til ýmsar skýrslur erlendis frá sem sýna fram á gildi byggingararfsins. (Realdania; værdien af bygningsarven mars 2015).
Gunnþóra segir að töluvert sé um að fólk vilji breyta húsum á þessu svæði, t.d. stækka pínulítil timburhús þegar nútíma-heimilistæki komast ekki inn í rýmin. „Það er líka húsvernd að koma slíku í farveg þar sem húsvernd getur líka falist í því að húsin eru í notkun, gegna ákveðnu hlutverki. Við endurskoðun deiliskipulags þarf m.a. að skoða þessa þætti, hvar sé mögulegt að byggja við og með hvaða hætti. Síðan þarf deiliskipulagið og Verndarsvæði í byggð að haldast í hendur.”
Hér hefur verið vel að verki staðið
Næsta fundi verði streymt á vef og Facebooksíðu Hafnarfjarðarbæjar þriðjudaginn 31. mars kl. 17. „Við erum að reyna að koma þessu öllu heim og saman í ljósi þeirra aðstæðna sem nú hefur skapast. Hugmyndin er að fólk geti þá setið heima og pikkað inn spurningar sem reynt verði að svara fljótt og fólki gefið rými eftir á til að kynna sér málin. Við viljum gera þetta í góðu samráði við íbúa á svæðinu og aðra íbúa Hafnarfjarðar. Íbúar hafa oft hnippt í okkur því þeir þekkja svæðið oft betur en við. Þegar búið verður að hnoða þessu saman fer deiliskipulagið í auglýsingu og þá hafa íbúar aftur tækifæri til að koma með athugasemdir. Fólk áttar sig ekkert endilega á teikningum og er því alltaf velkomið að hafa samband við okkur hér eða kíkja við. Við viljum endilega virkja fólk til þátttöku,“ segir Gunnþóra.
Viðtal við Gunnþóru birtist í Hafnfirðingi 19. mars 2020
Fuglaflensa hefur greinst á höfuðborgarsvæðinu. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélagsins hefur samið við Dýraþjónustu Reykjavíkur um að fjarlæga dauða fugla. Meindýraeyðar þurfa staðsetningu…
Drög að nýrri umhverfis- og auðlindastefnu fyrir Hafnarfjörð liggja fyrir. Kallað er eftir þátttöku íbúa í rýni á drögum og…
Ákveðið hefur verið að setja upp tvo nýja ærslabelgi í Hafnarfirði á árinu 2025 á völdum opnum svæðum í bænum…
Alls voru 524 nýjar íbúðir fullbúnar í Hafnarfirði í fyrra. Þær bættust í hóp 11 þúsund íbúða í bæjarfélaginu. Nýjum…
FH, Hafnarfjarðarbær og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) hafa tekið höndum saman og bjóða frá 15. janúar fótboltaæfingar fyrir börn í 1.-10.…
Tafir hafa orðið á sorphirðu nú á nýju ári. Ljóst er að tunnurnar verða tæmdar viku á eftir áætlun. Unnið…
Algjörar skvísur verður sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa breiðu sviði sýningarstjóra kost á…
Alls sátu 100 foreldrar PMTO-foreldrafærninámskeið hjá Hafnarfjarðarbæ í fyrra. Foreldrarnir fá kennslu og eru þjálfaðir í styðjandi leiðum í uppeldishlutverki…
Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, er með opna viðtalstíma alla þriðjudaga frá kl. 9:30 – 11:30. Viðtalstímar eru bókaðir í…
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa…