Vetrarfrí í Hafnarfirði – hugmyndir að góðri skemmtun

Fréttir

Sund, bingó, ratleikur, bíó, listasmiðjur og fleira skemmtilegt! Vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar dagana 14.- og 15. október. Af því tilefni er m.a. frítt í sund fyrir börn og fullorðna þessa tvo daga í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll Hafnarfjarðar. Hér koma nokkrar hugmyndir að góðri skemmtun frá Heilsubænum Hafnarfirði. 

Sund, bingó, ratleikur, bíó, listasmiðjur og fleira skemmtilegt! 

Vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar í vikulok; fimmtudaginn 14. október og  föstudaginn 15. október. Af því tilefni er m.a. frítt í sund fyrir börn og fullorðna þessa tvo daga í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll Hafnarfjarðar.

Heilsubærinn Hafnarfjörður býður börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt skemmtilegu bingói í vetrarfríinu en þar má finna góðar hugmyndir að skemmtilegri og fjölbreyttri afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Litli ratleikur Hafnarfjarðar 2021 leiðir svo þátttakendur á 15 áhugaverða staði sem m.a. vekja athygli á sögu bæjarins.

Grunnskólabörn eru boðin velkomin í Bókasafn Hafnarfjarðar í vetrarfríinu, en þar verður m.a. afrakstur samvinnu frístundaheimilanna og bókasafnsins, Nærbuxnaverksmiðjan, til sýnis í fjölnotasal. Á Byggðasafni Hafnarfjarðar verður hægt að taka þátt í skemmtilegum og fróðlegum ratleik fyrir fjölskylduna sem leiðir gesti um safnið og Hafnarborg býður grunnskólabörnum að koma og taka þátt í skemmtilegum og skapandi listasmiðjum.

Miðvikudagur 13. október

Fimmtudagur 14. október

  • FRÍTT Í SUND frá kl. 6:30-22 í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug og í Sundhöllinni til kl. 21
  • Ratleikur fyrir börnin og barnaleiðsögn um Byggðasafn Hafnarfjarðar kl. 13.  Opið 11-15
  • Sýningin Samfélag skynjandi vera í Hafnarborg. Opið 12-17
  • Listasmiðja í umsjá Þórdísar Jóhannesdóttur frá kl. 13-15 í Hafnarborg. Unnar verða klippimyndir og sprettibækur (pop-up bækur) þar sem hús, híbýli og verur öðlast líf á blaðsíðum bóka
  • D&D fyrir byrjendur á Bókasafni Hafnarfjarðar – skráning nauðsynleg (uppbókað)
  • Nærbuxnaverksmiðjan – afrakstur samvinnu frístundaheimilanna og bókasafnsins á Bóka- og bíóhátíð barnanna til sýningar í fjölnotasal

Föstudagur 15. október

  • FRÍTT Í SUND frá kl. 6:30-22 í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug og í Sundhöllinni til kl. 21
  • Ratleikur fyrir börnin og áhugaverðar sýningar á Byggðasafni Hafnarfjarðar. Opið 11-15
  • Listasmiðja í umsjá Karólínu Einarsdóttur frá kl. 13-15 í Hafnarborg. Hugtakið “skynjandi verur” er skoðað út frá sjónarhóli barna. Þátttakendur fá tækifæri til að búa til litlar verur úr leir sem skynja heiminn ólíkt okkur mannfólkinu
  • Fjölskyldustund á barnadeild Bókasafns Hafnarfjarðar – sögustund kl. 13 
  • Nærbuxnaverksmiðjan – afrakstur samvinnu frístundaheimilanna og bókasafnsins á Bóka- og bíóhátíð barnanna til sýningar í fjölnotasal

Laugardagur 16. október

  • Ratleikur fyrir börnin og áhugaverðar sýningar á Byggðasafni Hafnarfjarðar. Opið 11-17
  • Sýningin Samfélag skynjandi vera í Hafnarborg. Opið 12-17
  • Nærbuxnaverksmiðjan – afrakstur samvinnu frístundaheimilanna og bókasafnsins á Bóka- og bíóhátíð barnanna til sýningar í fjölnotasal

Sunnudagur 17. október

  • Byggðasafn Hafnarfjarðar opið 11-17. Ratleikur og áhugaverðar sýningar.
  • Sýningin Samfélag skynjandi vera í Hafnarborg. Opið kl. 12-17.

Þá hefur heilsubærinn Hafnarfjörður tekið saman heilt stafróf af hugmyndum að fjölmörgu spennandi og skemmtilegu sem hægt er að taka sér fyrir hendur heimavið eða í næsta nágrenni. Þar má nálgast fullt af hugmyndum að einhverju nýju og öðruvísi til að gera einn eða með fjölskyldunni. Hér á vefnum er einnig hægt að nálgast lista yfir sérstæð náttúrufyrirbrigði og áhugaverða staði og fjölda göngu- og hjólaleiða sem liggja um Hafnarfjörð. Á kortavef bæjarins er svo að finna yfirlit yfir alla boltavelli, leikvelli og ærslabelgi. 

Heilsubærinn Hafnarfjörður óskar íbúum og vinum Hafnarfjarðar gleðilegs vetrarfrís!

Ábendingagátt