Vetrarhátíð 2026 – fáðu innblástur við að raða upp dagskránni

Fréttir

Margt er í boði á Vetrarhátíð 2026. Rýndu í dagskrána og fáðu innblástur við uppröðunina. Þannig verður helgin frábær.

Vetrarhátíð í Hafnarfirði

Hvernig er best að njóta Vetrarhátíðar í Hafnarfirði? Margt er í boði; kvöldsund, tónlistarbingó, önnur frábær tónlist, fyrirlestrar og smiðjur. Hér eru tvennar tillögur til að einfalda líf ykkar sem vitið ekkert hvað á að velja úr þessum konfektmolum!

Plan A

Föstudagskvöld á Safnanótt

  • 19:00 í Hafnarborg. Tónaflóð – tónheilun með Völu Gestsdóttur

Hlaupa svo yfir á byggðasafnið…

  • 20:00 á Byggðasafninu. Bryndís Björgvinsdóttir þjóðfræðingur heldur erindið: Álfabyggðir og bannhelgi í Hafnarfirði: Tengsl hjátrúar við náttúrusýn. 

Fara svo beint í Sívertsenhúsið

  • Föstudagur kl.18.00- 22:00. Annríki þjóðbúningar og skart sýna baðstofuverkin.

Laugardagur á Sundlauganótt

  • Kl. 17 – mætt í Ásvallalaug. Frítt og vatnaboltar í stóru lauginni.

Úr sundi í sund! Og njóta sundlauganæturinnar í botn.

  • Kl. 19 í Suðurbæjarlaug. Tónlistarbingó – bingó og tónlist í eina sæng!

Sunnudagssíðdegi

  • Milli kl. 18-22 í Hjarta Hafnarfjarðar. Hafnarfjarðarkirkja, Hásalir og Tónlistarskóli Hafnarfjarðar lýst upp með fallegum litum. Frábært tækifæri fyrir ísbíltúr.

Plan B

Föstudagskvöld á Safnanótt

  • Kl. 18 í Pakkhúsinu. Sjónaukasmiðja, þar sem hægt er að föndra sinn eiginn sjónauka.
  • Kl. 18:30 í Pakkhúsinu. Nota tækifærið og hlusta á Skátana spila vel valin lög
  • Kl. 19:30 á Bókasafninu. Njóta meiri tónlistar en hljómsveitin LEA spilar þar
  • Kl. 20 við Fjarðarkaup. Ná 15 mínútna ljósmyndasýningu Fókus, félagi áhugaljósmyndara, á Led-skiltinu við Fjarðarkaup. Sýningin er á klukkustundarfresti.

Laugardagur á Sundlauganótt

  • Svamla í Suðurbæjarlaug milli kl. 18-22.

Sunnudagssíðdegi

Kl. 18-22 í hjarta Hafnarfjarðar

  • Nú, rétt eins og í plani A – vert að fara á rúntinn og njóta þess að sjá Hafnarfjarðarkirkju, Hásali og Tónlistarskólann lýstan með litadýrð nú í skammdeginu.

Já, það er margt í boði.

Skoðaðu alla dagskrána hér í Hafnarfirði á Vetrarhátíð 2026. Vetrarhátíð er haldin dagana 5.–8. febrúar. Vetrarhátíðin er í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Fjöldi listamanna tekur þátt í 150 viðburðum og skapa einstaka stemningu á höfuðborgarsvæðinu.

Frítt er á alla viðburði.

Ábendingagátt