Víðavangshlaup Hafnarfjarðar 2018
Árlegt Víðavangshlaup Hafnarfjarðar fór fram á Sumardaginn fyrsta, 19. apríl á Víðistaðatúni.
Árlegt Víðavangshlaup Hafnarfjarðar fór fram á sumardaginn fyrsta, 19. apríl á Víðistaðatúni.
Keppendur voru um þrjúhundruð og fimmtíu í 14 flokkum, fjölmennast var í yngstu flokkunum. Keppendur voru frá öllum íþróttafélögum bæjarins og voru margir efnilegir hlauparar að stíga sín fyrstu skref þarna.
Úlfheiður Linnet var fyrst í mark í flokkum 15 ára og eldri og Úlfar Linnet var síðan fyrstur í flokki 15 ára og eldri karla.
Veðrið var gott á meðan hlaupinu stóð. Frjálsíþróttadeild FH sá um framkvæmd hlaupsins.
Verðlaun voru gefin af Hafnarfjarðarbæ og fengu allir keppendur verðlaunapeninga og fyrstu keppendur í mark í hverjum flokki fengu verðlaunabikara.
Keppni var hörð og góð í öllum flokkum, fyrstu í hverjum flokki voru eftirtalin:
Konur 15 ára og eldri
- Úlfheiður Linnet
- Magnea Dís Birgisdóttir
- Eyrún Ösp Birgisdóttir
Karlar 15 ára og eldri.
- Úlfar Linnet
- Þórhallur Jóhannesson
- Þorvarður Jónsson
- Ásbjörn Jónsson
Piltar 13-14 ára
- Birgir Bóas Davíðsson
- Sindri Dagur Sigurgeirsson
Stúlkur 13-14 ára
- Selma Sól Sigurjónsdóttir
- Katrín Ásta Eyþórsdóttir
Piltar 11-12 ára
- Jóhann Ási Jónsson
- Svavar Ísak Ólason
- Kristófer Júlian Björnsson
Stúlkur 11-12 ára
- Ísold Sævarsdóttir
- Jónína Linnet
- Sara Kristín Lýðsdóttir
Piltar 9-10 ára
- Hlynur Örn Hjálmarsson
- Krummi Víglundsson
- Hugi Steinn Hlynsson
Stúlkur 9-10 ára
- Hafrún Birna Helgadóttir
- Rebekka Unnarsdóttir
- Sunna Bríet Guðmundsdóttir
Hnokkar 7-8 ára
- Orri Kristmundsson
- Steinar Grétarsson
- Darri Daníelsson
Hnátur 7-8 ára
- Arney Zomers
- Þórdís Lilja Jónsdóttir
- Elísa Hilmars
Hnokkar 6 ára og yngri
- Breki Fjalar Valdimarsson
- Elddór Nökkvi Hlynsson
- Alexander Óli Magnússon
Hnátur 6 ára og yngri
- Brynja Jóhannsdóttir
- Gígja Hjaltadóttir
- Ester Ómarsdóttir