Viðbrögð við jarðskjálfta – að gefnu tilefni

Fréttir

Að gefnu tilefni vill Hafnarfjarðarbær hvetja Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til að kynna sér viðbrögð við jarðskjálfta. Í ljósi skjálfta síðustu vikurnar og þá ekki síst nú síðustu vikuna er mikilvægt að allir séu meðvitaðir um rétt viðbrögð komi til frekari jarðhræringa á næstu dögum, vikum, mánuðum eða árum.   

Að gefnu tilefni vill Hafnarfjarðarbær hvetja Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til að kynna sér viðbrögð við jarðskjálfta. Í ljósi skjálfta síðustu vikurnar og þá ekki síst nú síðustu vikuna  er mikilvægt að allir séu meðvitaðir um rétt viðbrögð komi til frekari jarðhræringa á næstu dögum, vikum, mánuðum eða árum.   

Á vef Veðurstofunnar er ávallt að finna nýjustu upplýsingar um stöðu mála

Skjalftar1

Ef þú ert innandyra þegar þegar jarðskjálfti byrjar– ekki hlaupa af stað

  • Haltu kyrru fyrir, mörg slys verða þegar hlaupið er af stað
  • Farðu undir borð eða rúm og haltu þér í borð- eða rúmfót
  • Krjúptu niður í horni við burðarvegg eða í hurðaropi við burðarvegg
  • Verðu höfuð þitt og andlit með kodda- ef þú vaknar upp við jarðskjálfta
  • Haltu þig frá gluggum – þeir geta brotnað
  • Láttu vita af þér með SMS þegar jarðskjálftinn hættir


Ef þú er utandyra þegar þú finnur jarðskjálfta – ekki hlaupa inn

  • Vertu áfram úti
  • Ekki vera nálægt háum byggingum sem geta hrunið eða háum trjám
  • Grjóthrun, skriður og snjóflóð geta fallið úr hlíðum og fjalllendi
  • Raflínur geta verið hættulegar – varist að snerta þær
  • Reyndu að komast á opið svæði þar sem byggingar þrengja ekki að


Ef þú ert að keyra bíl þegar þú finnur jarðskjálfta
:

  • Leggðu bílnum og stoppaðu. Vegir og brýr geta skemmst í jarðskjálfta
  • Hafðu sætisbeltin spennt
  • Haltu kyrru fyrir í bílnum þar sem hann getur varið þig gegn brotum og braki sem fer af stað í jarðskjálfta – hlustaðu á útvarpið, þar koma jafnan fyrstu upplýsingarnar um jarðskjálftann.

Markmið almannavarna er að takast á við vá af völdum náttúruhamfara, af mannavöldum, farsótta eða hernaðaraðgerða eða af öðrum ástæðum, sem kann að ógna lífi og heilsu almennings, umhverfis og eða eignum.  Ítarlegar upplýsingar er að finna á vef Ríkislögreglustjóra – almannavarnardeild  

Ábendingagátt