Viðbrögð við og eftir jarskjálfta – að gefnu tilefni

Fréttir

Við vekjum athygli á skjálftavirkni við Kleifarvatn, en líkt og Veðurstofan bendir á þá eru skjálftarnir þar svokallaðir gikkskjálftar.

Talsvert hefur verið um skjálftavirkni eins og bæjarbúar hafa eflaust tekið eftir. Svokallaðir gikkskjálftar staðsettir rétt vestan við Kleifarvatn hafa gert vart við sig nú. Kvikuinnskotið við Fagradalsfjall veldur spennubreytingum bæði vestan við Kleifarvatn og í grennd við Grindavík sem leysir úr læðingi skjálftana. Það er því sennilega ekki kvika á ferðinni við Kleifarvatn eða Grindavík að sögn deildarstjóra almannavarna Höfuðborgarsvæðisins.

Veðurstofan hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu:

„Við vekjum athygli á skjálftavirkni við Kleifarvatn, en líkt og Veðurstofan bendir á þá eru skjálftarnir þar svokallaðir gikkskjálftar. Kvikuinnskotið við Fagradalsfjall veldur spennubreytingum bæði vestan við Kleifarvatn og í grennd við Grindavík sem leysir úr læðingi skjálftana. Það er því sennilega ekki kvika á ferðinni við Kleifarvatn eða Grindavík.

Við minnum fólk á að huga að lausa- og innanstokksmunum sem geta fallið við jarðskjálfta og huga sérstaklega að því að ekki geti fallið lausamunir á fólk í svefni.“

Sjá ítarlegar upplýsingar um viðbrögð við og eftir jarðskjálfta á vef almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra ásamt upplýsingum um varnir og viðbúnað vegna skjálfta.

Á vef Veðurstofunnar er ávallt að finna nýjustu upplýsingar um stöðu mála

Hægt er að fylgjast með jarðskjálftavirkni í bæjarvefsjánni

Ef þú ert innandyra þegar þegar jarðskjálfti byrjar– ekki hlaupa af stað

  • Haltu kyrru fyrir, mörg slys verða þegar hlaupið er af stað
  • Farðu undir borð eða rúm og haltu þér í borð- eða rúmfót
  • Krjúptu niður í horni við burðarvegg eða í hurðaropi við burðarvegg
  • Verðu höfuð þitt og andlit með kodda- ef þú vaknar upp við jarðskjálfta
  • Haltu þig frá gluggum – þeir geta brotnað
  • Láttu vita af þér með SMS þegar jarðskjálftinn hættir


Ef þú er utandyra þegar þú finnur jarðskjálfta – ekki hlaupa inn

  • Vertu áfram úti
  • Ekki vera nálægt háum byggingum sem geta hrunið eða háum trjám
  • Grjóthrun, skriður og snjóflóð geta fallið úr hlíðum og fjalllendi
  • Raflínur geta verið hættulegar – varist að snerta þær
  • Reyndu að komast á opið svæði þar sem byggingar þrengja ekki að


Ef þú ert að keyra bíl þegar þú finnur jarðskjálfta
:

  • Leggðu bílnum og stoppaðu. Vegir og brýr geta skemmst í jarðskjálfta
  • Hafðu sætisbeltin spennt
  • Haltu kyrru fyrir í bílnum þar sem hann getur varið þig gegn brotum og braki sem fer af stað í jarðskjálfta – hlustaðu á útvarpið, þar koma jafnan fyrstu upplýsingarnar um jarðskjálftann.

Markmið almannavarna er að takast á við vá af völdum náttúruhamfara, af mannavöldum, farsótta eða hernaðaraðgerða eða af öðrum ástæðum, sem kann að ógna lífi og heilsu almennings, umhverfis og eða eignum. Ítarlegar upplýsingar er að finna á vef Ríkislögreglustjóra – almannavarnardeild

Ábendingagátt