Auður Eysteinsdóttir opnar sýningu í Litla Gallerý 10.-13. ágúst

Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 10. ágúst mill 18:00-20:00 og allir velkomnir!
„Flestir hafa einhvern tímann legið á bakinu og horft upp í himininn, séð skýin færast til og taka á sig hinar ýmsu kynjamyndir. Andlitin sem birtast í myndum mínum eiga sér rætur í skýjamyndum sem ég horfði á sem barn. Þau búa yfirleitt til tengingu innan myndarinnar. Á sama hátt og kvikar skýjamyndir, þá eiga myndirnar mínar það til að breytast eftir hvernig horft er á þær. Margar litlar myndir birtast og stundum þarf að horfa vel til að sjá heildarmyndina. Augað greinir eitthvað á myndinni, kannski fugl, fiðrildi, gróður en á því augnabliki birtist annað auga, andlit ..og augnablikið rennur hjá.
Ég lauk prófi úr Myndlista-og handíðaskóla Íslands og hef kennt myndmennt í um 25 ár. Auk kennslunnar hef ég tekið að mér ýmis teikniverkefni, rekið gallerý ásamt öðrum og skapað myndverk í frístundum mér til ánægju.“
Sjá viðburð á Facebook Augnablik | Facebook
Auður tekur vel á móti gestum og opnunartímar eru eftirfarandi:
fimmtudagur  18:00-20:00föstudagur      13:00-18:00laugardagur    12:00-17:00sunnudagur    14:00-17:00
Ábendingagátt