Ræðum saman um skjáina – Foreldraráðið fundar með þér 👏
Áttu lausa stund? Henni gæti best verið varið við að ræða stafræna velferð í Víðistaðaskóla á morgun, þriðjudaginn 17, febrúar kl. 18.30. Viðburðurinn er fyrir okkur öll í Hafnarfirði – foreldra, ungmenni og öll sem láta sig málið varða. Foreldraráð Hafnarfjarðar heldur viðburðinn.
- Fræðsla með Önnu Laufeyju – Stafræn velferð
- Gunnar Helgason mætir og lætur sig málið varða
Farið verður yfir áhrif skjánotkunar á börn og unglinga. Rætt hvað foreldrar og ungmenni geta gert til að stuðla að heilbrigðu jafnvægi í skjánotkun – fyrir börnin, fyrir sig sjálf og fjölskylduna í heild. Happdrætti og allir gestir fá heimilissáttmála til að taka með sér heim.
Já, þetta er gott tækifæri til að kynnast og skapa saman farsæla umgjörð um fjölskylduna 🥰