HamingjuGong við Hvaleyrarvatn

Fimmtudaginn 12. september klukkan 17:30

Velkomin í Gongslökun við Hvaleyrarvatn

Nú er haustið að byrja að skarta sinni dásamlegu fegurð og við ætlum að taka þátt í því með tíðni og tónum. Gongslökunin verður í faðmi náttúrunnar við Hvaleyrarvatn. Allir mæta með það sem til þarf til að slaka á úti í íslenskri náttúru í september. Gott er að hafa með sér hlýtt teppi til að vefja um sig, en þú getur verið hvort sem er sitjandi eða liggjandi til að taka við tíðni gongsins.

Látum gongið hreyfa aðeins við orkunni!

Gongin hafa þann eiginleika að hreyfa við orkunni okkar. Þitt er alltaf valið hvort þú setur þér ásetning um að vinna með eitthvað tiltekið viðfangsefni í þínu lífi eða mætir einfaldlega með opinn hug og ásetning um hamingju og vellíðan í hug og hjarta. Gongin vinna með þann farveg sem hver og einn velur sér fyrir stundina.

Unnið verður með tvö títaníum gong, Bifröst 30″ og Deep Ocean 42″. Það er ekkert sem þarf að gera annað en að mæta og njóta!

Áshildur Hlín, í samstarfi við Heilsubæinn Hafnarfjörð, leiðir HamingjuGong við Hvaleyrarvatn.

Ábendingagátt