HamingjuGong við Hvaleyrarvatn

Miðvikudaginn 3. september kl. 18:00

Nú skartar haustið sinni dásamlegu fegurð. Við ætlum að taka þátt í því með tíðni og tónum. Gongslökunin verður í faðmi náttúrunnar við Hvaleyrarvatn. Öll mæta með það sem til þarf til að slaka á úti í íslenskri náttúru í september. Gott er að hafahlýtt teppi til að vefja um sig, en þú getur  setið eða legið til að taka við tíðni gongsins. 

Látum gongið hreyfa aðeins við orkunni!

Gongin hafa þann eiginleika að hreyfa við orkunni okkar. Þitt er alltaf valið um að vinna með eitthvað tiltekið viðfangsefni í þínu lífi eða hvort þú mætir einfaldlega með opinn hug og ásetning um hamingju og vellíðan í hug og hjarta. Gongin vinna með það sem hver og einn velur sér þá stundina. 

Unnið verður með tvö títaníum gong, Bifröst 30″ og Deep Ocean 42″. Ekki þarf að gera annað en að mæta og njóta! 

Áshildur Hlín, í samstarfi við Heilsubæinn Hafnarfjörð, leiðir HamingjuGong við Hvaleyrarvatn.

Vertu velkomin í Gongslökun við Hvaleyrarvatn! 

Ábendingagátt