HamingjuSána með Herjólfsgufunni
Fimmtudaginn 4. september frá kl. 17-19
Gufuhópurinn Herjólfsgufan býður gestum að prófa glænýja sánu við Langeyrarmalir.
Taktu dýfu í kaldan sjóinn og komdu svo inn í hlýja og endurnærandi gufuna.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir sjóbaðsunnendur – eða þá sem langar að prófa eitthvað nýtt og frískandi!
Verði fjöldi þátttakenda það mikill að gufan fyllist þá verður skipt um hóp á u.þ.b. 15 mínútna fresti
Gufan verður opin frá 17 til 19 – Öll velkomin!