Föstudaginn 14. apríl opnar Halldór Árni Sveinsson málverkasýningu í Litla Gallerý, Strandgötu 11.

Formleg opnun verður þann dag á milli kl. 17:00-19:00, og eru allir hjartanlega velkomnir.

Á sýningunni sýnir Halldór Árni ný olíumálverk, máluð á þessu ári og því síðasta, auk nokkurra olíukrítarmynda. Myndefnið er bærinn og umhverfi hans, en Halldór er að flytja aftur í Fjörðinn eftir langa búsetu annars staðar.

Halldór Árni er menntaður myndlistarmaður og auglýsingateiknari frá MHÍ, og kenndi listmálun hjá Námsflokkum Hafnarfjarðar og víðar í rúma þrjá áratugi. Hann hefur haldið fjölda málverkasýninga og tekið þátt í samsýningum. Flest verkin á sýningunni eru til sölu.

Sýningin er opin yfir tvær helgar, sem hér segir;

Föstudaginn 14. apríl, frá 13:00 – 19:00,
Laugardaginn 15. apríl, frá 12:00 – 17:00
Sunnudaginn 16. apríl, frá 14:00 – 17:00

Miðvikudaginn 20. apríl, Sumardaginn fyrsta, frá kl. 12:00 – 17:00

Föstudaginn 21. apríl, frá 13:00 – 18:00,
Laugardaginn 22. apríl, frá 12:00 – 17:00
Sunnudaginn 23. apríl, frá 14:00 – 17:00.

 

Viðburðurinn er styrktur af Menningar og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar.

Ábendingagátt