Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opnað með hátíðlegri dagskrá á Thorsplani föstudaginn 14. nóvember þegar ljósin verða tendruð á Cuxhaven-jólatrénu. Sendiherra Þýskalands, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og formaður vinabæjarfélagsins Hafnarfjörður-Cuxhaven sjá um að tendra ljósin á trénu. Jólatréð er gjöf frá Cuxhaven, vinabæ Hafnarfjarðar í Þýskalandi til 37 ára. Það lýsir upp Jólaþorpið á nýjum stað í desember
Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði verður opið allar helgar frá og með 14. nóvember.
Kaffihúsið í Hellisgerði verður opið á opnunartíma Jólaþorpsins og alltaf til kl. 20 þau kvöld. Sérstök athygli er vakin á því að Hjartasvellið og tívolí við Venusarhúsið Strandgötu 11 eru opin allar helgar fram að jólum.
————————————————————–
Kl. 17:00 Jólaþorpið opnar Kl. 18:00 Lúðrasveit Hafnarfjarðar Kl. 18:15 Karlakórinn Þrestir Kl. 18:30 Tendrað á ljósunum á Cuxhaven jólatrénu Kl. 18:40 Bestu jólalög barnanna – Árni Beinteinn og Sylvía
Kl. 12 – 16 Pólski dagurinn á Bókasafni Hafnarfjarðar! Kl. 13 – 15 Á mínu máli – þæfingarsmiðja og pólsk mynstur í Hafnarborg Kl. 15 – 16 Sykurpúðar á priki við Grýluhellinn hjá Pakkhúsi Byggðasafnsins Kl. 16 – 17 Söguganga um Hafnarfjörð á pólsku, gengið frá Byggðasafni Hafnarfjarðar!
Komið og prófið íshokki á Hjartasvellinu við Bæjarbíó í Hafnarfirði! Hressir íshokkíkrakkar úr U10 flokki SR sýna listir sínar í léttum leik og svo eru allir velkomnir að prófa að grípa í kylfu, pökk og skauta, skjóta og skora. Kl. 13:00-13:30 sýningarleikur U10 krakkar úr SR Kl. 13:30-14:30 opinn ís, krakkar velkomnir að prófa með kylfu og pekki. Kl. 15:00-18:00 frítt á skauta í boði Símans – bóka þarf pláss inná hjartasvellid.is
Kl. 15 – 16 Sykurpúðar á priki við Grýluhellinn hjá Pakkhúsi Byggðasafnsins Kl. 16:30-17 Sýningarhópur frá Listdansskóla Hafnarfjarðar dansar á Thorsplani, við Hjartasvellið og í Hellisgerði
Jólabærinn og Jólaþorpið iða allt af lífi og fjöri fyrir jólin. Fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsin á Thorsplani eru fyrir löngu orðin landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun.
Tilvalið er að leita að hinni fullkomnu jólagjöf í Jólaþorpinu á meðan notið er gómsætra veitinga sem ylja að innan. Jólasveinarnir koma í heimsókn allar helgar og Grýla verður á vappi um bæinn á sunnudögum.
Strandgata frá Lækjargötu að Linnetstíg breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið. Það er gert til að dreifa umferð gangandi vegfaranda um miðbæinn og tryggja öryggi allra okkar góðu gesta.
Við erum jólabærinn Hafnarfjörður
Allt um jólabæinn Hafnarfjörð 👉 hfj.is/jol
Fylgdu okkur á Facebook og instagram !
Opið á Byggðasafninu frá kl. 11–17 alla laugardaga og sunnudaga fram að jólum! Byggðasafnið bíður upp á sykurpúða á priki…
Í ár opnar Jólaland Kubbsins í fyrsta sinn og býður gestum að stíga inn í fallegt, hlýlegt og bjart jóla…
Sandra Dögg Jónsdóttir – 1974 Sandra Dögg stundaði snemma á þessari öld nám í bæði hönnun og ljósmyndun við Iðnskólann.…
Komdu að njóta með okkur! Jólaþorpið í Hafnarfirði hefur fengið framúrskarandi viðtökur þetta árið. Stemningin hefur verið gullfalleg. Svæðið…
Íshús Hafnarfjarðar heldur jólamarkað í Ægi sunnudaginn 7. desember milli klukkan 13 og 17. Þátttakendur hafa allir aðstöðu í Íshúsinu…
Þriðjudaginn 9. desember frá klukkan 13:00 til 15:00 verður opnunarsýning athvarfsins Lækjar þar sem fjölmörg listaverk eftir stóran hóp skapandi…
Milli kl. 15:00 og 19:00 opna tæknismiðjan og tilraunarsmiðjan í Nýsköpunarsetrinu dyr sínar fyrir almenningi og bjóða í skapandi jólastund.…
Komdu að njóta með okkur! Jólaþorpið í Hafnarfirði hefur fengið framúrskarandi viðtökur þetta árið. Stemningin hefur verið gullfalleg. Fjörður…
Hátíðar Tónar í samstarfi við Jólaþorpið í Hafnarfirði Tómas Vigur Magnússon Leikin verða vel valin fiðlu- og píanóverk fyrir gesti…
Frá kl. 15:00 til 19:00 verða tæknismiðjan og tilraunarsmiðjan í Nýsköpunarsetrinu opin öllum sem vilja skapa sitt eigið jólaskraut. Hér…