Komdu að njóta með okkur!  

Jólaþorpið í Hafnarfirði hefur fengið framúrskarandi viðtökur þetta árið. Stemningin hefur verið gullfalleg. Svæðið stækkaði enn frekar á föstudag þegar Fjörður opnaði nýjar verslanir steinsnær frá þorpinu okkar góða. Strandgatan iðar af lífi.

Jólaþorpið með fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsunum eru fyrir löngu orðið landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun. Já, þar er tilvalið að leita að hinni fullkomnu jólagjöf á meðan fjölskyldan nýtur gómsætra veitinga sem ylja að innan.

Jólasveinarnir koma í heimsókn um helgar og Grýla verður einnig á vappi um bæinn á sunnudögum. Strandgata breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið.

Dagskrá helgarinnar

Föstudagur 28. nóvember
Laugardagur 29. nóvember
  • Kl. 15:00 Leikhópurinn Lotta mætir í Jólaþorpið
  • Kl. 15 – 16 Sykurpúðar á priki við Grýluhellinn hjá Pakkhúsi Byggðasafnsins
Sunnudagur 30. nóvember 
  • Kl. 14 – 16 Myndataka með Sveinka á sviðinu á Thorsplani
  • Kl. 15 – 16 Sykurpúðar á priki við Grýluhellinn hjá Pakkhúsi Byggðasafnsins

————————————————————–

Fastir liðir öll jólin í Hafnarfirði

Kaffihús í Hellisgerði, Hjartasvell og tívolí

Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði verður opið allar helgar frá og með 14. nóvember; föstudaga frá kl. 17-20, laugardaga frá kl. 13-20 og sunnudaga frá kl. 13-18. Opið verður mánudaginn 22. desember frá kl. 17-20 og á Þorláksmessu frá kl. 13-21.

Í Oddrúnarbæ í Hellisgerði verður Helliskaffi opið frá 14. nóvember á föstudögum frá kl. 17-22, laugardögum frá kl. 13-22 og á sunnudögum frá kl. 13-21. 

Sérstök athygli er vakin á því að Hjartasvellið og tívolí við Venusarhúsið Strandgötu 11 eru opin allar helgar fram að jólum. 

JólaHjarta Hafnarfjarðar

Fimmtudaga – laugardaga frá kl. 17-22. Jólahjarta Hafnarfjarðar í aðventuhátíðartjaldi á bak við Bæjarbíó. Tilvalið fyrir mömmur og pabba, ömmur og afa og vinahópa að mæta á svæðið og fá sér matarbita og jóladrykk með. Hægt verður að kaupa Jóla-humarsúpu Tilverunnar frá kl. 17 -20 alla opnunardagana.

Ratleikur í miðbænum 

Taktu þátt í jólaratleik í Jólaþorpinu og finndu sveinana þrettán, Grýlu, Leppalúða og jólaköttinn! Leikurinn gengur út á að finna fígúrurnar þrettán á ljósastaurum í miðbænum. Og hvernig spilum við leikinn? Jú, hjá hverjum staur er spjald með nafni jólasveinsins og QR kóði. Hann á að skanna inn til að finna réttan bókstaf sem skrifa á niður og safna saman. Stafirnir mynda svo stutta setningu sem skila þarf inn rafrænt. Hjálparblað má fá á Bókasafninu, Byggðasafninu, Hafnarborg og í gróðurhúsunum á Thorsplani eða sækja hér. Hægt verður að taka þátt út 22. desember. Veitt verða þátttökuverðlaun á Þorláksmessu. Sjá nánar hér.

Þú finnur jólaandann hjá okkur  

Jólabærinn og Jólaþorpið iða allt af lífi og fjöri fyrir jólin og fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsin á Thorsplani eru fyrir löngu orðin landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun. Þar er tilvalið að leita að hinni fullkomnu jólagjöf á meðan notið er gómsætra veitinga sem ylja að innan. Jólasveinarnir koma í heimsókn á laugardögum og Grýla verður á vappi um bæinn á sunnudögum. Strandgata frá Lækjargötu að Linnetstíg breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið. Er það gert til að dreifa umferð gangandi vegfaranda um miðbæinn og tryggja öryggi góðra gesta  

Við erum jólabærinn Hafnarfjörður

Við tökum hlýlega á móti þér og þínum! 

Ábendingagátt