Komdu heim í jólabæinn Hafnarfjörð á aðventunni

Hafnarfjörður býður jólin velkomin með sínu árlega jólaþorpi fullu af gleði, gómsætum bitum og skemmtilegum jólavarningi, ljósadýrð og ævintýraveröld í Hellisgerði, Hjartasvelli og svo miklu fleiru.

Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði verður opið allar helgar frá og með 17. nóvember; föstudaga frá kl. 17-20, laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-18 til jóla og til kl. 21 á Þorláksmessu. Í Jólaþorpinu iðar allt af lífi og fjöri fyrir jólin og fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsin eru fyrir löngu orðin landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun. Þar er tilvalið að leita að hinni fullkomnu jólagjöf á meðan þú nýtur gómsætra veitinga sem ylja að innan. Jólasveinarnir koma í heimsókn á laugardögum og Grýla verður á vappi um bæinn á sunnudögum. Strandgata breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið.

  • Föstudagur frá kl. 17-18 – Prince Polo rafbrauðið mætir á svæðið ásamt jólasveinum
  • Föstudagur frá kl. 18-20 – JólaJúllaDiskó í Jólaþorpinu | Facebook
  • Föstudagur frá kl. 20-23. Jóla-karaoke í Hamrinum, ungmennahúsi Hafnarfjarðar
  • Laugardagur frá kl. 13-21. Í upplifunarhúsum á Thorsplani verða annars vegar Trefjar með eldstæðin sín og hins vegar verður gestum boðið uppá drykki frá Töst, Ölvisholti og Mekka.
  • Jólasveinarnir koma í heimsókn og Grýla verður á vappi um bæinn allan laugardaginn
  • Fimmtudagur – laugardagur frá kl. 17-22. Jólahjarta Hafnarfjarðar í aðventuhátíðartjaldi á bak við Bæjarbíó. Tilvalið fyrir mömmur og pabba, ömmur og afa og vinahópa að mæta á svæðið og fá sér matarbita og jóladrykk með
Dagskrá á Thorsplani og að Thorsplani  á Þorláksmessu 
Kl.19:00 – Jólaganga frá Ægi 220 við smábátahöfnina, bakatil í Íshúsi Hafnarfjarðar
Kl. 19:40 – Diljá
Kl. 20:00 – Sigurður Guðmundsson

Við erum jólabærinn Hafnarfjörður

Ábendingagátt