Carmina Burana í íþróttahúsinu Strandgötu
Kammerkór Hafnarfjarðar, Ungmennakórinn Bergmál, Unglingakór Hafnarfjarðarkirkju og Kór Öldutúnsskóla ásamt einsöngvurum, píanóleikurum og slagverkssveit flytja stórvirkið Carmina Burana á tónleikum…
Lúðrasveit Hafnarfjarðar fagnar 75 ára afmæli í ár og blæs til afmælistónleika í Norðurljósum, Hörpu, miðvikudaginn 9. apríl kl. 20:00.
Efnisskráin samanstendur að miklu leyti af verkum sem hafa nýlega verið samin eða útsett fyrir lúðrasveitir, meðal annars eftir Philip Sparke, John Williams og Johan de Meij. Einnig verða leikin ýmis verk sem lúðrasveitin hefur leikið gegnum tíðina, svo sem Blásið hornin eftir Árna Björnsson og konsertpolka Páls Pampichler Pálssonar fyrir tvær klarinettur og lúðrasveit, en þar munu Ásdís Birta Guðnadóttir og Kristín Jóna Bragadóttir spila sólópartana.
Stjórnandi Lúðrasveitar Hafnarfjarðar er Rúnar Óskarsson.
Miðaverð á tónleikana er 2000-3000 krónur. Miðasala fer fram á tix.is: https://tix.is/event/19176/ludrasveit-hafnarfjardar-75-ara-afmaelistonleikar
Facebook-viðburður fyrir tónleikana: https://www.facebook.com/events/1571929866811566