Opið hús verður þriðjudaginn 10. febrúar frá kl. 9:00 til 15:30 að Norðurhellu 2, 221 Hafnarfirði, þar sem hægt verður að kynna sér tillögu að breyttu deiliskipulagi í Norðurbænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 8. janúar 2026 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi íbúðarhverfis í Norðurbæ Hafnarfjarðar vegna Hjallabrautar 45–49C í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Breytingin felur í sér að aðkoma að íbúðarsvæðinu verður beint frá Hjallabraut, en aðkoma frá bílastæðum skátaheimilisins verður lokað. Gestabílastæðum verður fjölgað. Í stað djúpgáma verður sorpflokkun leyst með sorptunnum við hvert hús.
Á kynningartíma frá 27. janúar til 15. mars 2026 má nálgast tillöguna á vef skipulagsgáttar https://skipulagsgatt.is/
Athugasemdum og/eða ábendingum skal skila rafrænt í gegnum skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. Ef óskað er frekari upplýsinga um tillögur í kynningu er hægt að senda fyrirspurn á netfangið: skipulag@hafnarfjordur.is.
Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðar