Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Fimmtudaginn 14. september kl. 20 fögnum við opnun haustsýningar Hafnarborgar í ár, Landslag fyrir útvalda, en sýningin er sú þrettánda í haustsýningaröð Hafnarborgar sem hóf göngu sína árið 2011. Í tengslum við hátíðina List án landamæra munum við einnig fagna opnun einkasýningar Sindra Ploder, Ef ég væri skrímsli, í Sverrissal Hafnarborgar en Sindri var fyrr í ár útnefndur listamanneskja hátíðarinnar að þessu sinni.
Landslag fyrir útvalda (14. september til 30. desember 2023) Á sýningunni er myndmál veruleikaflótta kannað. Við búum í heimi öfgafullra yfirvofandi breytinga í samfélagi sem kallar eftir því að einstaklingar beri ábyrgð á hnattrænum vandamálum í síauknum mæli. Að leita á vit flóttans er því orðinn stór hluti hversdagsleikans. Veruleikaflóttinn sem slíkur er ekki nýr af nálinni, heldur hefur hann fylgt okkur um aldanna rás. Birtingarmyndir hans eru og hafa verið margbreytilegar en eiga það flestar sameiginlegt að endurspegla það ástand sem þeim er ætlað að flýja. Auk þess getur flóttinn haft mótandi áhrif á þann sem kýs að flýja á vit annarra heima.
Listamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Arna Beth, Fritz Hendrik IV, Margrét Helga Sesseljudóttir, Sól Hansdóttir, Vikram Pradhan, Bíbí Söring og Þrándur Jóhannsson, auk þess sem sýnd eru verk eftir Eirík Smith, Patrick Huse og Sigrid Valtingojer úr safneign Hafnarborgar og Listasafns ASÍ. Sýningarstjórar eru Eva Lín Vilhjálmsdóttir og Odda Júlía Snorradóttir. Samhliða opnun sýningarinnar kemur út vegleg sýningarskrá með textum eftir sýningarstjóra og fjölda annarra höfunda.
Ef ég væri skrímsli (14. september til 15. október 2023) Á sýningunni eru gestir leiddir inn í mynd- og hugarheim listamannsins Sindra Ploder. Sindri hefur teiknað skrímsli frá tólf ára aldri og notast helst við penna og pappír en hefur í seinni tíð einnig fært teikningar sínar yfir í þrívídd og gert skúlptúra í við, keramik, mósaík og textíl. Verk Sindra eru sum hver sjálfsmyndir, þar sem glettni, dirfska og ögrandi gleði leynir sér ekki. Blikið í augum Sindra endurspeglast í teikningunum sem fanga áhorfandann við fyrstu sýn. Sýningarstjóri er Íris Stefanía Skúladóttir, listrænn stjórnandi Listar án landamæra. Björgvin Ploder og félagar munu leika ljúfa tóna við opnunina.
Sindri Ploder (f. 1997) hefur tekið þátt í fjölda sýninga síðan árið 2016, nú síðast í sýningunni Brot af annars konar þekkingu sem sýnd var í Nýlistasafninu í ársbyrjun. Þá tók Sindri fyrst þátt í samsýningu á vegum List án landamæra árið 2017, þar sem hann vann með hönnuðinum Munda Vonda. Eins tók Sindri þátt í List án landamæra árin 2019, 2020 og 2022, þar sem hann sýndi teikningar, ullarmottu og viðarskúlptúra. Árið 2019 tók hann listaáfanga í Myndlistaskólanum í Reykjavík og var í kjölfarið með verk á samsýningu í skólanum en Sindri hefur síðan verið í listnámi hjá Fjölmennt, samhliða vinnu í Bjarkarási.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin