Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Föstudaginn 21. febrúar kl. 18 bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Staldraðu við, þar sem getur að líta verk eftir átta listamenn frá Englandi og Íslandi. Á sýningunni er sjónum beint að list sem ferli og getu hennar til að tengjast áhorfandanum og umhverfi sínu. Listamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Anna Hrund Másdóttir, Birgir Snæbjörn Birgisson, Danny Rolph, Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Joel Tomlin, Kristinn Már Pálmason, Peter Lamb og Vanessa Jackson. Sýningarstjórar eru Birgir Snæbjörn Birgisson og Mika Hannula.
Að staldra við er þegar við höfum tilhneigingu til að dvelja lengur vegna tregðu til að fara. Sú tregða er oft knúin áfram af angurværri löngun, þótt við vitum ekki endilega hvers vegna og hvað það er sem við þráum. Það sem við vitum er einfaldlega að við verðum að staldra við. Þá kallar sýningin fram spurningar um hvað gerist þegar við stöndum frammi fyrir verkum sem krefjast þess að við tökum þátt og verðum fyrir áhrifum. Verkum sem í sakleysi sínu og nánum aðstæðum eru áhættusækin.
Þá nota þátttakendur mismunandi aðferðir og tækni til að nálgast þessar spurningar. Anna Hrund og Ingibjörg vinna með fundna hluti og efni sem opinbera jafnvel nýjan og hverfulan léttleika tilverunnar þegar þeir eru teknir úr upprunalegu samhengi. Verk Rolphs og Jackson laga sig að rýminu og aðstæðum og leyfa geómetrískum, óhlutbundnum formum að taka völdin. Birgir Snæbjörn og Lamb vinna út frá og eftir ljósmyndum og nota marglaga birtingarmynd eftirmyndarinnar til að nálgast hið óáþreifanlega. Tákn og form Tomlins og Kristins Más verða svo, þegar þau eru sett saman, að sínu eigin tungumáli. Öll átta deila þau þeirri trú að myndlist sé staður uppgötvana – ekki felustaður – og knýja verk þeirra okkur til að staldra við.
Samhliða sýningunni kemur út bókin Linger, með greinum eftir Mika Hannula. Ritstjóri er Birgir Snæbjörn Birgisson og Sigrún Sigvaldadóttir annaðist hönnun bókarinnar. Útgefandi er Hunang og er útgáfan styrkt af Myndstefi og Hafnarborg.
Ókeypis aðgangur – sjáumst í Hafnarborg.