Komdu og upplifðu brúðuleikhús í Hellisgerði!

Pönnukakan hennar Grýlu er skemmtileg og falleg jólasaga sem er unnin upp úr evrópskri þjóðsögu sem flestir ættu að kannast við.

Sagan segir frá hugvitsamri pönnuköku sem nær að flýja steikarpönnu Grýlu með það fyrir augum að ferðast alla leið í arma Jesú litla og foreldra hans sem dvelja svöng og köld í fjárhúsi í Betlehem. En á vegi hennar verða margir sem vilja sinn skerf af ,,pönnu”kökunni.

Ábendingagátt